Sport

Reyndi að lemja áhorfendur

Jefferson er hér alveg brjálaður í gær.
Jefferson er hér alveg brjálaður í gær. vísir/getty
Quinton Jefferson, leikmaður NFL-liðsins Seattle Seahawks missti algjörlega stjórn á skapi sínu eftir að hafa verið rekinn af velli í tapleik gegn Jacksonville Jaguars.

Á leið sinni af vellinum var kastað mat og gosi að heitum Jefferson sem í kjölfarið gjörsamlega missti það.

Hann reifst við áhorfendur og reyndi að komast upp í stúku til þess að lumbra á þeim. Öryggisverðir sáu til þess að það tókst ekki hjá honum.

Sjá má myndbönd af þessari ótrúlega uppákomu hér.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×