Bíó og sjónvarp

Reyna að gera Justice League aðdáendur spennta fyrir laugardeginum

Birgir Olgeirsson skrifar
Justice League í fullum skrúða.
Justice League í fullum skrúða.
Ný stikla er væntanlega á laugardag úr Justice League-myndinni en þangað til býður kvikmyndaverið Warner Bros. upp á tvær stuttar klippur af Batman og Aquaman.

Í Batman-klippunni sést Ben Affleck í nærmynd sem Bruce Wayne og þá sést Batman keyra Batmanbílinn og skjóta á einhvern óvin.

Í Aquaman-klippunni sést Batman afhenda Aquaman þríforkinn þekkta og þá sést Aquaman beita mætti sínum af fullum þunga.

Justice League verður frumsýnd 17. nóvember næstkomandi en um er að ræða persónur úr DC-myndasagnaheiminum. Justice League er teymi sem samanstendur af Batman, Wonder Woman, The Flash, Cyborg og Aquaman. Í myndasögunum er Superman vanalega með þeim en eins og flestir vita sem sáu Batman v Superman: Dawn of Justice, var hann talinn af eftir bardaga við Doomsday en kemur þó væntanlega aftur við sögu í Justice League.


Tengdar fréttir

Bréfberi ógn við Batmanmynd

Aðalvarðstjóri í lögreglunni segir póstburðarmann spilla fyrir Strandamönnum með birtingu mynda af tökustað Hollywoodmyndar í Djúpuvík. Pósturinn segir sér hafa verið skipað að fjarlægja myndir af netinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×