Innlent

Reykræsta íbúð í Grafarvogi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. Vísir/Samúel Karl
Slökkviliðinu barst tilkynning um reyk út um glugga í fjölbýlishúsi í Grafarvogi klukkan 15:42 í dag. Þá fór reykskynjari einnig í gang.

Tveir slökkviliðsbílar, sjúkrabílar og lögreglan fóru á vettvang og kom skömmu síðar í ljós að pottur hafði gleymst á eldavél.

Enginn eldur var sjáanlegur og er nú verið að reykræsta íbúðina samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×