Lífið

Reykjavíkurdætur orðnar þreyttar á öllum þessum fanbois

Guðrún Ansnes skrifar
Anna Tara segir textann hafa komið nokkuð hratt og örugglega upp í hendurnar á þeim í kjölfar alls fársins sem fylgdi framkomu þeirra hjá Gísla Marteini.
Anna Tara segir textann hafa komið nokkuð hratt og örugglega upp í hendurnar á þeim í kjölfar alls fársins sem fylgdi framkomu þeirra hjá Gísla Marteini.
„Þetta er ekki djúpt lag, við vorum bara orðnar svo fokking þreyttar á öllum þessum „fanbois“, gjörsamlega óþolandi hvað það situr um okkur mikið af smástrákum,“ segir Anna Tara Andrésdóttir um nýtt lag runnið undan rifjum Hljómsveittrar, sem hún myndar ásamt systur sinni, Katrínu Andrésdóttur.

Til að flækja málið örlítið er Hljómsveitt svo undir Reykjavíkurdætrum og því má segja að lagið Fanboi sé nýjasta afsprengi þeirrar umdeildu sveitar.

Líkt og alþjóð varð vitni að fyrir um tveimur vikum, í þættinum Vikan með Gísla Marteini á RÚV, átti hópurinn aldeilis innkomu og í stuttu máli fór internetið á hliðina er Ágústa Eva Erlendsdóttir gekk út. Var það að einhverra mati glæfralegur flutningur lagsins Ógeðslega nett sem setti allt úr skorðum. Í beinu framhaldi varð lagið Fanboi til að sögn systranna.

Í texta lagsins er vitnað í nokkra vinsælustu rappara landsins.Vísir/Ernir
Það var lítið mál og verkefnið þeyttist áfram á nokkrum dögum. Eftir þátt Gísla Marteins veltu margir fyrir sér hvort strákar hefðu komist upp með gjörning líkt og Reykjavíkurdætur. Hins vegar má velta því fyrir sér hvort þær hafi komist upp með þann gjörning ef marka má viðbrögð samfélagsins.

„Í texta lagsins er farið yfir mörg þekkt íslensk rapplög eftir karlmenn og þannig velta þær upp spurningunni um tvöfalt siðgæði kynjanna og fleira. Þá er skoðað hvers vegna slíkir textar eru samdir og hvers vegna lög með slíkum textum verða vinsæl,“ bendir Anna Tara á.

Í texta lagsins er sem sagt vitnað í nokkra vinsælustu rappara landsins svo sem Hr. Hnetusmjör, Blaz Roca, Gísla Pálma og Emmsjé Gauta, sem nokkuð óáreittir hafa getað ort um það sem þeim sýnist.

Anna Tara samdi textann með bróður sínum, Alex Michael Green. Hann leikstýrði og pródúseraði myndbandið ásamt Alexander Hrafni Ragnarssyni og verður það frumsýnt á Vísi á morgun.

„Við erum ekkert að reyna að starta neinu „beefi“ þó svo að hér sé verið að skjóta á hina ýmsu rappara, svo það sé sagt,“ segir Anna Tara og skýtur inn laufléttu „love love“ að lokum.

Stilla úr myndbandinu sem frumsýnt verður á Vísi á morgun, miðvikudag.
Textabrot úr Fanboi



Svíf yfir bráðinni því ég er svo fly

ein nótt með mér og þú verður high

Ég rúlla eins og keilukúla og næ fellu

Svona sem ég rúlla, elskumessar mellur

það er mánudagur ekki angra mig

þá fer ég á húð og kyn

það kemst engin undan mínum taktföstu hips

slæda upp á frænda segi dick viltu bitch

Ég lyfti mér upp við þetta lyftiduft 

ef þú ert á efninu  hendur upp

finnur hann hverfin finnur finnur hann í hverfinu

fremstur í fylkingunni í free the nipple byltingunni

Beygðu þig niður það er dinner time

ABCD og þú veist hvað kemur næst

Nenni ekki pillow talk þú færð ekki meir

komið í story, þú skalt drulla þér heim


Tengdar fréttir

Reykjavíkurdætur túra um alla Evrópu

Reykjavíkurdætur eru að fara á mikið flakk á næstu mánuðum en þær hafa verið bókaðar á margar af stærstu tónlistarhátíðum í Evrópu en í dag var tilkynnt að þær kæmu fram á Hróarskeldu í júní.

Ágreiningur um útgöngu Ágústu Evu

Meðan margir telja Ágústu Evu hafa rétt lágmenningu maklega fingurinn telja margir Silvíu Nótt ekki trúverðuga í slíkri gagnrýni.

Reykjavíkurdætur í sama flokki og Megas, Bubbi og Björk

Gísli Marteinn Baldursson, stjórnandi Vikunnar, segir atriði Reykjavíkurdætra í þætti sínum skipa sér í sveit með öðrum ögrandi listamönnum og að saga okkar væri fátækari hefðu sambærileg atriði ekki fengið að sjást.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×