Innlent

Reykjagarður innkallar kjúkling vegna salmonellu

Atli ÍSleifsson skrifar
Neytendur sem hafa keypt kjúklinga með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir  að skila inn vörunni þar sem hún var keypt eða til Reykjagarðs.
Neytendur sem hafa keypt kjúklinga með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir að skila inn vörunni þar sem hún var keypt eða til Reykjagarðs. Vísir/Hari
Reykjagarður hefur hafið innköllun afurða eftir að upp kom rökstuddur grunur um að salmonella hafi greinst í einum kjúklingahópi Reykjagarðs.

Í fréttatilkynningu segir að vörur með rekjanleikanúmerið 001-15-08-1-01 hafi verið innkallaðar. „Neytendur sem hafa keypt kjúklinga með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir að skila inn vörunni þar sem hún var keypt eða til Reykjagarðs Fosshálsi 1. 110 Reykjavík.“

Í tilkynningunni segir að í reglubundnu eftirliti með salmonellu í kjúklingaslátrun hafi rökstuddur grunur komið upp um að salmonella hafi greinst í einum kjúklingahópi Reykjagarðs. „Umræddur kjúklingahópur var rannsakaður áður en honum var slátrað án þess að Salmonella hafi fundist. Sýnin eru enn í greiningu hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og verða send til staðfestingar á sýkladeild Landspítalans. Endanleg staðfesting mun væntanlega  liggja fyrir í næstu viku.“

Þá segir að tekið skuli fram að ef áprentaðar leiðbeiningar um eldun á umbúðum er fylgt, sé ekki talin hætta á að fólki geti smitast af salmonellu ef kjarnhiti nái 72°C. Ekki liggi fyrir grunur um að aðrar afurðir hjá Reykjagarði séu mengaðar af salmonellu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×