Innlent

Reykingabann í bílum kemur til greina

Freyr Bjarnason skrifar
Viðar Jensson er verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá embætti Landlæknis.
Viðar Jensson er verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá embætti Landlæknis. Fréttablaðið/Vilhelm
Mögulegt bann við reykingum í bílum þar sem börn eru með í för er hluti af því sem skoðað er í tengslum við nýja opinbera stefnumótun í tóbaksvörnum. Embætti Landlæknis vinnur að stefnumótuninni, ásamt velferðarráðuneytinu og fleirum. Stutt er síðan breska þingið samþykkti slíkt bann með miklum meirihluta.

Stefnumótuninni hér á að ljúka í vor og kemur þá í ljós hvort lagðar verði til svipaðar breytingar.

„Við höfum fylgst með því í gegnum okkar norræna samstarf sem er að gerast í öðrum löndum eins og í Finnlandi og í Bretlandi,“ segir Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá embætti Landlæknis. „Finnar hafa reynt að koma þessu í gegnum þingið en þeim varð ekki ágengt í fyrstu tilraun.“

Viðar bendir á að reykur úr sígarettum í lokuðu rými á borð við bíl sé ellefu sinnum eitraðri en í opnu rými eins og á veitinga- eða skemmtistað. „Mig langar til að benda á þessa alþjóðasamninga sem við höfum samþykkt eins og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þar segir að forráðamenn barna eigi að bera ábyrgð á að þau séu ekki í skaðlegu umhverfi,“ segir hann og áréttar um leið að í alþjóðarammasamningi um tóbaksvarnir, sem hér hafi verið fullgiltur 2005, sé viðurkennt að vísindaleg gögn hafi með óhyggjandi hætti staðfest að óbeinar reykingar valdi dauða, sjúkdómum og fötlun.

Að sögn Viðars er Bretland fyrsta vestræna ríkið sem samþykkir lög á landsvísu um bann við reykingum í bílum þar sem börn eru með í för. „Svæði í Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu hafa tekið þetta upp. Ástralar og Kanadamenn hafa alltaf verið svolítið á undan í tóbaksvarnarmálum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×