Bíó og sjónvarp

Réttur einn af sjónvarpsþáttum ársins að mati New York Times

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þættirnir vöktu mikla athygli.
Þættirnir vöktu mikla athygli. Mynd/Stöð 2
Sjónvarpsþátturinn Réttur er einn af bestu sjónvarpsþáttum ársins að mati gagnrýnda New York Times. Magnúsi Jónssyni og Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur fá sérstakt hrós fyrir frammistöðu sína í þáttunum.

Þættirnir, sem upphaflega voru sýndir á Stöð 2 voru nýlega teknir til sýninga á alþjóðlegum vettvangi á Netflix þar sem þeir ganga undir nafninu Case.

Gagnrýnendur segja þættina vera snjalla og sérstaklega hrollvekjandi dæmi um Nordic Noir-þætti. Þættirnir hefjast á rannsókn á því sem virðist vera sjálfsmorð ungrar stúlku en að sögn gagnrýnenda New York Times gefa þættirnir ógeðfellda yfirlitsmynd yfir það hvernig ungar stúlkur geti verið misnotaðar.

Segja þeir að Steinunn og Magnús sem leika bæði stór hlutverk í þáttinum geri það að listgrein að leika á þunglyndislegan og svipbriðgalausan hátt.

Sjá má lista New York Times yfir sjónvarpsþætti ársins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×