Rétttrúnaður í boði borgarráðs

Vísir Aðsendar greinar 17. nóvember 2011 10:00
Björn Erlingsson hafeðlisfræðingur.
Björn Erlingsson hafeðlisfræðingur.
Trúrækni Íslendinga hvílir á langri hefð fyrir heimilisguðrækni. Lengst af hafa eldri kynslóðir haft trúfræðslu með höndum sem hefur færst yfir á presta kirkjunnar og kennara þar sem dregið hefur úr sambýli eldri og yngri kynslóða. Þorri barna á leikskólaaldri tekur með einhverjum hætti þátt í sunnudagaskóla kirkjunnar með foreldrum sínum. Því er fylgt eftir með fermingarfræðslu þar sem börnin eru búin undir að taka meðvitaða trúarafstöðu á grundvelli þekkingar og reynslu.

Fermingarstarfi er vel sinnt í íslensku samfélagi með ríkum stuðningi og eftirfylgni frá fjölskyldum, ættingjum og vinum – samfélagsins alls og síðast en ekki síst fermingarbörnunum. Fermingarstarfið er stærsti snertiflötur kirkjunnar við söfnuðina og er sannarlega burðarás í trúariðkun á Íslandi. Flestir líta á sína barnatrú sem uppsprettu þeirrar trúar, vonar og kærleika sem þeir byggja trúarþroska fullorðinsáranna á. Þannig er fermingin upphaf á mikilvægum kafla í sjálfstæðu trúarlífi barna og jafnframt endir á þeim sem hófst með skírninni. Það er vart til nein skýrari og ákveðnari trúaryfirlýsing og ásetningur um trúarlegt uppeldi barna en það þegar foreldrar bera börn til skírnar. Það vekur furðu að fermingarfræðsla, sem er veigamikill þáttur í trúrækni grunnskólabarna, hafi orðið bitbein borgaryfirvalda, þar henni er ýtt út af vettvangi grunnskólans – sem er vettvangur barnanna sjálfra, ekki borgarráðs. Meintar reglur borgarráðs um samskipti trúfélaga við leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili hafa verið settar til að mæta sérhagsmunum eins tiltekins trúskoðunarhóps. Þess er krafist að framkoma barna og umgengni við þau megi ekki hafa neina birtingarmynd trúarskoðunar eða trúariðkunar á vettvangi leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila.

Þetta sjónarmið gengur í berhögg við hugsana-, samvisku- og trúfrelsi í orði og á borði. Að búa í fjölmenningarsamfélagi krefst þess að tekist sé á við það félagslega og uppeldislega viðfangsefni sem felst í mismunandi lífsskoðunum og trú. Að reyna að eyða út mismun er að ala á þröngsýni og fordómum og gerir fjölbreytileikann að lokum óbærilegan. Að leysa það mál með því að allir taki upp sömu lífsskoðun í verki er ekki í boði að hætti borgarráðs og í sjálfu sér kúgun á trúarskoðunum – hér barna.

Með reglum borgarráðs er verið að gera trúarlíf að jaðarmenningu og lagður er steinn í götu borgarbúa til mannræktar og þroska í trú í sínu eigin umhverfi. Óskir og þarfir þorra borgarbúa varðandi ríkan þátt í menningu og sið þeirra lítillækkaðar. Það er og verður ætíð á forræði foreldra barnanna í samstarfi leik- og grunnskóla við foreldra að grípa til þeirra félagslegu og uppeldislegu úrræða sem þurfa að vera fyrir hendi að leysa uppeldi barna vel úr hendi – einnig trúaruppeldi.

Framkvæmd trúaruppeldis hefur tekið tillit til eðlilegra almannahagsmuna og hefur verið með miklum ágætum í góðu samstarfi foreldra, skóla og kirkju. Það þróast áfram til að skólinn geti gegnt skyldum sínum með þarfir og óskir barna og foreldra að leiðarljósi. Þjóðkirkjan hefur sett sér starfsreglur í anda metnaðar um hófsemi og nærgætni – sérstaklega í garð annarra trúfélaga – og tekur með því ábyrga stöðu við uppbyggingu fjölmenningarsamfélags á Íslandi.

Í 28. grein barnasáttmálans er fjallað um inntak menntunar og skyldu samfélagsins við að fræða börn og sérstaklega tekið fram að það skuli efla „virðingu fyrir menningarlegri arfleið, tungu og gildismati og þjóðernislegum gildum þess lands sem það býr í eða kann að vera upprunnið frá“. Enn fremur er fjallað um skyldu samfélagsins við að undirbúa börn til að lifa „ábyrgu lífi í þjóðfélagi, í anda skilnings, friðar, umburðarlyndis, jafnréttis og vináttu milli allra þjóða-, þjóðhátta-, þjóðernis- og trúarhópa“. Í markmiðum grunnskólalaga segir að byggja skuli upp alhliða þroska til þátttöku í íslensku lýðræðissamfélagi. Trúariðkun er þar með talin og viðurkennd frumþörf í lífi og þroska einstaklinga.

Íslenskt samfélag mun áfram þurfa að stuðla að uppeldi barna til virkrar þátttöku í samfélaginu í samræmi við barnasáttmála og grunnskólalög á forsendu ríkjandi samfélagssáttmála. Sá samfélagssáttmáli er opinn fyrir öðrum trúar- og lífsskoðunarfélögum sem virða tilverurétt og frelsi allra til trúarlífs og trúarþroska. Þessu er ekki þannig farið varðandi reglur borgarráðs. Þær einkennir trúarleg rétthugsun sem er í algerri mótsögn við það umburðarlyndi og þann gagnkvæma skilning sem hefur einkennt viðhorf til trúmála í rúm 1.000 ár á Íslandi.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Rétttrúnaður í boði borgarráðs