Réttarhöld yfir skipstjóra hefjast í júlí 23. maí 2013 00:30 enn á strandstað Costa Concordia liggur enn við eyjuna, tæpu einu og hálfu ári eftir skipskaðann. Aðstandendur fóru að skipinu og minntust látinna þegar ár var liðið frá slysinu í janúar síðastliðnum. nordicphotos/afp
Skipstjóri Costa Concordia skemmtiferðaskipsins, sem strandaði við eyjuna Giglio við Ítalíustrendur í byrjun síðasta árs, verður sóttur til saka fyrir manndráp, að valda strandinu og að hafa yfirgefið skipið á meðan farþegar og starfsfólk var þar enn. Dómari samþykkti þessa kröfu saksóknara í málinu í gær, en verjandi mannsins vildi semja án réttarhalda. Skipstjórinn Francesco Schettino á því yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi ef hann verður sakfelldur. Saksóknarar segja að Schettino hafi stýrt skipinu hættulega nálægt landi að kvöldi 13. janúar 2012. Það strandaði og 32 létust. Hann segist hins vegar vera saklaus og að hann sé gerður að blóraböggli í málinu. Rifið sem skipið strandaði á hafi ekki verið merkt inn á sjókort skipsins. Þá segist hann í raun vera hetja, hann hafi með kunnáttu sinni stýrt skipinu eins nálægt höfn og hægt var til þess að auðveldara væri að bjarga farþegunum. Lögfræðingur hans fór fram á að ákæru fyrir að hafa yfirgefið skipið yrði vísað frá. Þessu hafnaði dómarinn. Fimm aðrir sakborningar í málinu hafa samið um málalyktir utan dómstóla. Farþegar hafa greint frá því að brottflutningur þeirra frá skipinu hafi gengið hægt og verið óskipulagður. Ekki var hægt að nota alla björgunarbáta þar sem skipið fór nánast alveg á hliðina. Margir þurftu að stökkva af skipinu og synda í land í niðamyrkri. Sérfræðingar sem dómstólar hafa kallað til segja að Schettino beri ábyrgð á skipsskaðanum. Þeir segja þó einnig að starfsfólk og fyrirtækið sem átti skipið hafi brotið öryggisreglur sem hafi átt þátt í slysinu. Starfsfólk hafði ekki nægilega mikla þjálfun til að takast á við slys. Skipið liggur enn á strandstað, tæpu einu og hálfu ári eftir strandið. Áform um að fjarlægja það hafa dregist á langinn, en til stóð að það yrði farið áður en ferðamannastraumur sumarsins kæmi til eyjarinnar Giglio.thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira