Skoðun

Rétta liðið?

Sigurjón Vídalín Guðmundsson skrifar

Það er stundum talað um að stjórnmálaflokkar eigi ákveðið kjarnafylgi. Mér hefur alltaf þótt það svoldið óþægileg tilhugsun að slíkt skuli yfirhöfuð vera til og það sem er kannski enn verra að hjá sumum stjórnmálaöflum hefur þetta kjarnafylgi verið talið á bilinu 10-20%!



En hvað er kjarnafylgi? Jú, það er það fylgi sem stjórnmálaafl getur gengið að vísu sama hvað bjátar á. Svona svipað og að halda með íþróttaliði. Ég t.d. held með Liverpool, það er ekki alltaf búið að vera auðvelt, en ég held samt með þeim og mun alltaf gera. Það kannski gerir mér ekki alltaf gott, sérstaklega ekki þegar illa gengur, en það hefur bara áhrif á mig og mig einan.



Að „halda“ með stjórnmálaflokki er hins vegar aldrei gott. Það færir þeim sem eru í forystu á hverjum tíma völd sem hægt er að misnota án þess að þurfa að taka afleiðingum gjörða sinna. Flokkurinn fær alltaf sinn skerf af atkvæðum frá dyggum stuðningsmönnum og aðhaldið sem hverjum stjórnmálamanni og flokki er nauðsynlegt minnkar og jafnvel hverfur. Þar af leiðandi höfum við verið að horfa upp á það undanfarin ár og áratugi að stjórnmálamenn sækja umboð sitt til almennings með loforðaflaumi rétt á meðan á kosningabaráttunni stendur til þess eins að svíkja þau jafnharðan og halda áfram að verja hagsmuni fárra á kostnað heildarinnar á komandi kjörtímabili.



Slæmt fyrir samfélagið

Stundum fæ ég það á tilfinninguna að sumt af þessu fólki sem myndar þetta svokallaða kjarnafylgi geri það á þeim forsendum að það sé að styðja „liðið“ sitt. Það er stolt af því að halda hollustu við flokkinn sinn sama hvaða stefnu forysta hans tekur. Jafnvel þó þessi stefna samrýmist á engan hátt hagsmunum viðkomandi þá heldur hann samt áfram að styðja „liðið“ sitt. Það segir sig sjálft að það er ekki bara slæmt fyrir hag viðkomandi heldur getur það líka verið slæmt fyrir hag samfélagsins í heild og það er verst af öllu.



Stjórnmálaflokkar eiga ekki að eiga fylgi. Það er hættulegt lýðræðinu og gerir sérhagsmunahópum kleift að ná völdum í gegnum forystu flokka sem „eiga“ mikið kjarnafylgi. Það hefur gerst, það er að gerast og mun halda áfram að gerast ef kjarnafylgisfólkið breytir ekki um hugafar. Eina „liðið“ sem á að skipta máli í kosningum er samfélagið okkar og hvernig við, fólkið í landinu, viljum hafa það þannig að það þjóni okkur sem best og tryggi velferð okkar allra, ekki bara sumra.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×