Erlent

Repúblikanar segja lok, lok og læs

Samúel Karl Ólason skrifar
Mich McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild bandaríkjaþings, ræddi við blaðamenn í gær.
Mich McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild bandaríkjaþings, ræddi við blaðamenn í gær. Vísir/Getty
Repúblikanar á öldungadeild bandaríkjaþings ætla ekkert að aðhafast í að útnefna nýjan hæstaréttardómara. Þeir segja það vera verk þjóðarinnar og næsta forseta Bandaríkjanna. Hæstaréttardómarinn Antonin Scalia dó nýverið og samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna á forsetinn að tilnefna nýjan dómara og öldungaþingmanna að staðfesta eða hafna viðkomandi.

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur sagt að hann muni tilnefna hæfan einstakling fljótlega. Hann ætlast til þess að þingmenn vinni vinnuna sína.

Mitch McConnell, leiðtogi öldungaþingmanna Repúblikana, segir að þess til gerð nefnd muni ekki funda með þeim sem Obama tilnefnir og engin skref verði tekin til að koma ferlinu áfram. AP fréttaveitan segir aðgerðir sem þessar fáheyrðar.

Sem stendur eru einungis átta hæstaréttardómarar að störfum í Bandaríkjunum. Fjórir þeirra voru tilnefndir af Repúblikönum og fjórir af Demókrötum. Dómurinn á að taka á nokkrum mjög umdeildum málum á næstu mánuðum eins og fóstureyðingum og flóttamannavandanum.


Tengdar fréttir

Umdeildur hæstaréttardómari allur

Hart er tekist á um skipan nýs hæstaréttadómara í Bandaríkjunum eftir að hinn umdeildi Antonin Scalia lést í gær. Jón Steinar Gunnlaugsson segir mikinn missi af Scalia, sem hafi verið mikill áhrifavaldur í sínu fagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×