Erlent

Repúblikanar farnir að hafa áhyggjur af forsetaefni sínu

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Donald Trump hefur með framferði sínu vakið bæði reiði og ugg meðal áhrifamanna í Repúblikanaflokknum.
Donald Trump hefur með framferði sínu vakið bæði reiði og ugg meðal áhrifamanna í Repúblikanaflokknum. Vísir/EPA
Donald Trump lætur allt flakka eins og enginn sé morgun­dagurinn, þótt hann sé formlega orðinn forsetaefni Repúblikanaflokksins og þyrfti kannski að haga orðum sínum í samræmi við það. Til dæmis vakti hann hneyksli með ummælum um móður ungs hermanns, múslima, sem lét lífið í Írak. Faðir piltsins hafði flutt ræðu á flokksþingi demókrata, meðan móðirin stóð þögul við hlið hans.

Áhrifin láta ekki á sér standa: Fylgi hans hefur dalað verulega og líkurnar á sigri í forsetakosningunum í nóvember minnka hratt.

Bandaríska ABC-sjónvarpsstöðin segir að áhrifamenn innan flokksins séu farnir að hafa áhyggjur af því að mótlætið verði til þess að hann muni hætta við framboðið. Þá þyrftu þeir í snatri að finna einhvern í staðinn.

Algerlega óljóst er hver það ætti að verða. Ekki er sjálfgefið að það verði varaforsetaefnið Mike Pence. Ekki er heldur sjálfgefið að það verði einhver þeirra repúblikana sem hafa sóst eftir að verða forsetaefni flokksins. Það mætti hins vegar ekki dragast mjög því að með tímanum verður æ flóknara að setja annað nafn á kjörseðlana.

Fylgi Trumps hefur fallið hratt á síðustu dögum. Líkurnar á að hann sigri eru nú komnar niður í 22 til 27 prósent samkvæmt kosningavefnum fivethirtyeight.com. Ef kosið væri strax reiknast líkurnar 9 prósent.

Kosningafræðingar eru einnig farnir að velta því fyrir sér hvort neikvæð áhrif Trumps á Repúblikanaflokkinn geti smitað frá sér yfir á þingkosningarnar, þannig að þingmeirihluti flokksins í öldungadeildinni verði úr sögunni þegar nýtt þing kemur saman í janúar.

Harry Enten, stjórnmálaskýrandi á kosningavefnum fivethirty­eight.com, bendir á að í flestum svonefndum lykilríkjum kosninganna sé Trump nú með minna fylgi en frambjóðandi repúblikana til öldungadeildarinnar: „Ef staða Trumps skánar ekki þá munu repúblikanar því aðeins geta haldið meirihluta í öldungadeildinni að nógu margir kjósendur skipti atkvæðum sínum og kjósi repúblikana í öldungadeildina en ekki í forsetakjörinu,“ skrifar Enten. 

Barack Obama Bandaríkjaforseti.Vísir/EPA
Ánægjan með Obama eykst

Almenningur í Bandaríkjunum er ánægðari með frammistöðu Baracks Obama forseta nú en mælst hefur síðan í byrjun seinna kjörtímabil hans í janúar 2013.

Samkvæmt skoðanakönnun CNN-stöðvarinnar segjast 54 prósent Bandaríkjamanna ánægð með forsetann, en 45 prósent eru óánægð.

Ánægjan er meiri meðal yngra fólks en eldra. Hún mælist líka meiri meðal þéttbýlisbúa en dreifbýlisbúa. Einnig mælist hún meiri meðal þeirra sem hafa meiri menntun en minni.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Fordæmir Trump en styður hann samt áfram

Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn John McCain hefur ekki dregið til baka stuðning sinn við Donald Trump, en fordæmir engu að síður orð Trumps í garð bandarískra múslimahjóna sem stigu á svið á landsþingi Demókrataflokksins í síðustu viku.

Trump segir Obama hreina hörmung

Donald Trump, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, segir valdatíð Baracks Obama Bandaríkjaforseta hafa verið hreina hörmung og í raun versta forseta í sögu Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×