Innlent

Rennsli í Soginu ekki meira síðan 1999

Atli Ísleifsson skrifar
Elliðaáin í morgun.
Elliðaáin í morgun. vísir/birgitta
Rennsli er enn að vaxa í Hvítá og Ölfusá og er mikið vatn í öllum þverám Hvítár og mjög mikið í Soginu. Rennsli þar fór í 250 rúmmetra á sekúndu og hefur ekki verið jafn mikið síðan 1999.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni. Þá segir að rennsli hafi ekki náð hámarki í Hvítá við Fremstaver svo líklega nái Ölfusá við Selfoss ekki hámarki fyrr en á föstudagskvöld eða laugardagsmorgun. Líklegt sé að hámarksrennsli Ölfusár við Selfoss geti farið yfir 1.000 rúmmetra á sekúndu en slíkt hefur ekki gerst síðan í febrúar 2013.

„Skil hafa verið kyrrstæð yfir landinu síðustu tvo sólarhringa og fært okkur stöðuga rigningu langt sunnan úr hafi. Skilin eru nú á leið vestur út af landinu og því dregur smám saman úr úrkomu sunnan- og vestanlands og styttir að mestu upp í kvöld og nótt.

Ár á vesturlandi náðu hámarki snemma í morgun. Mjög mikið vatn er í ám við Mýrdalsjökul og sunnanverðan Vatnajökul eins og t.d. í  Krossá, Jökulsá á Sólheimasandi, Múlakvísl og Djúpá. Enn er mikil rigning á svæðinu og styttir ekki upp fyrr en í kvöld,“ segir í tilkynningunni.

Einnig segir að mjög mikið rennsli hafi verið í ám á höfuðborgarsvæðinu. Rennsli sé farið að minnka nema í Elliðaánum þar sem það sé enn að vaxa. Hámarksrennsli Korpu fór í 32 rúmmetra á sekúndu sem sé mesta flóð í Korpu síðan í febrúar 1994.


Tengdar fréttir

Rennslið í Ölfusá gæti þrefaldast

Það er ennþá mjög mikil rigning í kringum Mýrdalsjökul og Eyjafjallajökul sem og við suðurhluta Vatnajökuls. Það mun því halda áfram að bæta í rennsli í ám á svæðinu í allan dag segir Matthew Roberts fagstjóri vatnavár hjá Veðurstofu Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×