Formúla 1

Renault semur við Castrol

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Formúlu 1 lið Renault hefur samið við olíufélagið BP um að verða styrktaraðili liðsins og sjá því fyrir eldsneyti og smurolíu á komandi tímabili. BP mun gera slíkt undir Castrol merkjum sínum.

Renault hafði áður fengið eldsneyti sitt og smurolíu hjá Total en hefur nú snúið sér til BP og mun nota eldsneyti og olíur undir merkjum Castrol. BP vill koma merkjum Castrol aftur að í Formúlu 1.

„Með nýjum reglum um loftflæði sem taka gildi fyrir tímabilið munar meira um hvert hestafl sem vantar,“ sagði Cyril Abiteboul, framkvæmdastjóri Renault liðsins.

„Þar af leiðir að eldsneyti og smurolíur munu hafa meiri áhrif á heildarframmistöðu en áður undir þessum vélareglum. Sem hafa verið í gildi frá 2014.“

„Fólkið hjá BP og Castrol er mjög spennt yfir þeim áskorunum sem eru framundan í Formúlu 1 og við erum þess fullviss að þau geti hjálpað okkur að ná markmiðum okkar í ár og um ókomin ár,“ sagði Abiteboul að lokum.

„Endurkoma BP og Castrol, merkja með svo mikla sögu í kappakstri eru mjög góð tíðindi og opnar á nýja möguleika fyrir Formúlu 1 liðið okkar,“ sagði Jérome Stoll, forseti kappakstursdeildar Renault.

Renault lauk keppni í níunda sæti í fyrra og ætlar sér meira í náinni framtíð. Elsneytisframleiðandi við þeirra hlið getur hjálpað við það.


Tengdar fréttir

FIA samþykkir yfirtök Liberty Media

FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandið samþykkti á fundi sínum í dag yfirtöku bandaríska fjölmiðlafyrirtækisins Liberty Media. Liberty Media keypti fyrir áramót ráðandi eignahluti í félagi sem fer með sýningarétt frá Formúlu 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×