Lífið

Rektu lýtalækninn núna

elly@365.is skrifar
myndir/cover media
Leikkonan Lindsay Lohan, 25 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum eftir Golden Globe verðlaunaafhendinguna sem fram fór um helgina klædd í Prada síðkjól.

Aflitað hárið, silikonbrjóstin, þrútið andlitið og risastór efri vör leikkonunnar skyggðu á kjólinn sem var glæsilegur í alla staði.

Ef eldri myndir af henni eru bornar saman við nýjar má greinilega sjá breytinguna sem orðið hefur á andliti leikkonunnar. Upprunalega krúttlega Lindsay með rauða hárið og fallegu freknurnar er hægt og sígandi að hverfa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×