Innlent

Rektor HA segir skólann með allar nauðsynlegar undirstöður fyrir lögreglunámið

Atli Ísleifsson skrifar
Illugi Gunnarsson mennta-og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að ganga til samninga við Háskólann á Akureyri vegna kennslu-og rannsóknarstarfsemi lögreglufræða.
Illugi Gunnarsson mennta-og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að ganga til samninga við Háskólann á Akureyri vegna kennslu-og rannsóknarstarfsemi lögreglufræða. Vísir/Daníel
Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, segist fagna mjög ákvörðun menntamálaráðherra að fela háskólanum nám í lögreglufræði á háskólastigi.

Hann segir skólann vera með allar nauðsynlegar undirstöður fyrir námið á háskólastigi, svo sem afbrotafræði, sálfræði og lögfræði. „Við fögnum því trausti sem Háskólanum á Akureyri er sýndur með þessari ákvörðun.“

Í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri segir að skólinn sé með áratuga reynslu í að byggja upp starfsnám á háskólastigi. Rektor áréttar að ekki sé verið að flytja Lögregluskólann til Akureyrar heldur sé háskólanum falin sú vinna að byggja upp lögreglufræði, eða police science, sem alþjóðlega fræðigrein á háskólastigi.

„Þungamiðja starfsþjálfunar til dæmis forgangsakstur og meðferð skotvopna verður í höndum Mennta- og starfsþróunarseturs við embætti ríkislögreglustjóra,“ er haft eftir Eyjólfi.

Þurfa ekki að flytjast búferlum

Skólinn segir mikinn metnað lagðan í skipulag námsins sem unnið hafi verið í nánu samráði við fagaðila innan sem utan skólans. Áhersla sé lögð á sveigjanlegt nám sem þýði að nemendur í lögreglufræði þurfi ekki að flytjast búferlum til að stunda námið.

„Mikil áhersla var lögð á þetta fyrirkomulag í tveimur skýrslum undirbúningsnefnda og í umsögn Landssambands lögreglumanna. Við erum vel í stakk búin til að uppfylla þessar þarfir,“ er haft eftur Þóroddi Bjarnasyni, prófessor sem verður í forsvari fyrir nýju brautina.

120 eininga nám

„Nám í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri verður 120 eininga tveggja ára starfstengt diplómanám en einnig verður hægt að ljúka bakkalárnámi í lögreglufræði til 180 eininga. Jafnframt verður í boði sérsniðið námskeið fyrir lögreglumenn sem taka að sér verklega þjálfun nemenda. Í tillögum HA er gert ráð fyrir nýju fræðasetri þar sem rannsóknir í lögreglufræði verða byggðar upp en rannsóknir á því sviði hafa hingað til verið af skornum skammti hér á landi.

Rektor er einstaklega stoltur af þeirri faglegu og miklu vinnu sem starfsfólk HA hefur lagt á sig til þess að undirbúa flutning lögreglunáms á háskólastig – breyting sem er nauðsynleg til að styðja faglega við bakið á einni mikilvægustu stétt landsins. Háskólann á Akureyri mun vinna að þessu verkefni í nánu samstarfi við stjórnvöld, fagfélög og innlenda og erlenda háskóla,“ segir í tilkynningunni frá skólanum.


Tengdar fréttir

Nám lögreglumanna verður á Akureyri

Illugi Gunnarsson mennta-og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að ganga til samninga við Háskólann á Akureyri vegna kennslu-og rannsóknarstarfsemi lögreglufræða.

Flytur námið norður þvert á mat nefndar

Samið verður við Háskólann á Akureyri um að kenna lögreglunám á háskólastigi. Mikilvægt að styrkja stoðir fjölbreytts náms við HA að mati menntamálaráðherra. Háskóli Íslands var talinn hæfastur af matsnefnd sem sá um flutning n




Fleiri fréttir

Sjá meira


×