Viðskipti innlent

Rekstrarkostnaður íslenskra lífeyrissjóða lægstur innan OECD

Rekstrarkostnaður lífeyrissjóða á Íslandi og í Danmörku er lægri en í nokkrum öðrum aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hrafni Magnússyni framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Þar segir að nýjustu tölur þar að lútandi eru frá 2007 og rekstrarkostnaður íslenskra og danskra lífeyrissjóða svaraði þá til 0,2% af heildareignum sjóðanna.

Hlutfallið í Finnlandi, Þýskalandi og Austurríki var 0,4% en hæst var það í Tékklandi, 1,4%, eins og meðfylgjandi upplýsingar frá OECD sýna.

Landssamtök lífeyrissjóða telja nauðsynlegt að koma þessu á framfæri í ljósi fullyrðinga stjórnarmanns í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, Ragnars Þórs Ingólfssonar, um „glórulausan" rekstrarkostnað lífeyrissjóða á Íslandi. Hann er fastagestur í Silfri Egils, hefur jafnan uppi stór orð um lífeyrissjóði og starfsemi þeirra og umgengst staðreyndir býsna frjálslega á stundum í málflutningi sínum.

Ragnar Þór gagnrýnir nú rekstrarkostnað sjóðanna harðlega og telur auk þess rétt að sameina alla lífeyrissjóði Íslendinga í einn sjóð, sem væntanlega yrði þá á forræði ríkisins. Það er vissulega sjónarmið út af fyrir sig en hefur tæplega mikinn hljómgrunn í röðum sjóðfélaga innan hins almenna lífeyrissjóðakerfis.

Staðreyndin er sú, og auðveldlega má sannreyna þá fullyrðingu, að víða um heim er bent á íslenska lífeyrissjóðakerfið sem fyrirmynd. Jafnframt er eftir því tekið að kostnaður við rekstur þess er með því minnsta sem þekkist.

Tilefni gefst svo hér til að benda á að lífeyrissjóðum hefur fækkað mjög á undanförnum árum. Fyrir um tveimur áratugum voru þeir alls um 90 talsins en nú tekur 31 sjóður við iðgjöldum og fimm þeir stærstu ráða yfir 60% heildareigna lífeyrissjóða landsmanna. Tíu stærstu sjóðirnir ráða yfir um 80% eigna allra lífeyrissjóða.

Lífeyrissjóðum á Íslandi mun fækka enn frekar. Nýlega hafa til dæmis fjórir lífeyrissjóðir sameinast í Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda og meðal minnstu sjóðanna, sem nú eru starfandi, eru nokkrir sjóðir sveitarfélaga sem taka ekki við nýjum sjóðfélögum. Þeir munu því sjálfkrafa leggjast af á næstu árum..







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×