Rekinn út úr húsi eftir eina flottustu troðslu ársins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. janúar 2012 23:30
Þær finnast varla flottari troðslurnar í körfuboltanum en sú sem Markel Brown náði í leik Oklahoma State og Missouri í bandaríska háskólakörfuboltanum í vikunni. Stærsta fréttin var þó sú að þetta var það síðasta sem strákurinn fékk að gera í leiknum. Markel Brown fékk þarna frábæra sendingu frá leikstjórnandanum Keiton Page og tók boltann með annarri hendi í hæstu stöðu og tróð honum viðstöðulaust í körfuna, yfir einn varnarmanna Missouri. Markel Brown fagnaði troðslunni með því að snúa að sér og hæðast að greyið varnarmanninum sem hann hafði troðið yfir. Dómari leiksins var ekki hrifinn, gaf honum tæknivillu og þar sem að þetta var önnur tæknivilla Brown í leiknum, þá var hann rekinn út úr húsi. Brown hafði nefnilega líka fengið samskonar tæknivillu þegar hann tróð með tilþrifum í upphafi leiksins. Það er hægt að sjá þá troðslu með því að smella hér. Markel Brown og æstir áhorfendur áttu í erfiðleikum með að skilja hvað hafði gerst og það er óhætt að segja að Brown hafi brotlent harkalega eftir háloftasýningu sína. Hinir leikmenn Oklahoma State létu þetta þó ekki á sig fá og tryggðu sér 79-72 sigur en fyrir leikinn bjuggust flestir við sigri Missouri-liðsins. Það er hægt að sjá þessa stórglæsilegu troðslu Markel Brown með því að smella hér fyrir ofan.
Körfubolti Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Íslenski boltinn „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Fleiri fréttir „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni Sjá meira