Sport

Rekinn, sektaður og fangelsaður fyrir að brjótast inn í tölvu mótherjanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Njósnari bandaríska hafnarboltaliðsins St. Louis Cardinals gekk alltof langt í að reyna að afla sér upplýsinga um mótherjana liðsins.

Svo langt gekk hann að hann situr nú eftir atvinnulaus í fangelsi með 34 milljón króna sekt á bakinu.

Hinn 35 ára gamli Chris Correa starfaði sem yfirnjósnari hjá St. Louis Cardinals en varð uppvís að því að brjótast inn í tölvukerfi Houston Astros.

Chris Correa fékk 46 mánaða fangelsisdóm en auk þess þurfti hann að borga 279 þúsund dollara í sekt eða meira en 34 milljónir íslenskra króna.

Upp komst um athæfi Chris Correa í júní 2014 þegar framkvæmdastjóri Houston Astros lét vita af þessu en hann hafði áður unnið fyrir Cardinals-liðið.

Chris Correa hefur beðist afsökunar á framferði sínu en hann getur gleymt því að fá vinni í bandaríska hafnarboltanum þar sem eftir lifir ævi sinnar. „Ég braut gegn mínum gildum og þetta var rangt hjá mér. Ég hegðaði mér skammarlega. Þetta er það versta sem ég hef gert á allri minni ævi," sagði Chris Correa.

Bandaríska alríkislögreglan metur það sem svo að Houston Astros hafi tapað 1,7 milljónum dollara vegna „innbrots" Chris Correa en það eru 208 milljónir íslenskra króna.

Chris Correa hefur fengið sinn dóm og sína refsingu en það má líka búast við því að bandaríska hafnarboltadeildin mun refsa St. Louis Cardinals fyrir verknað starfsmanns þeirra. MLB-deildin mun bíða með refsingu þangað til að menn þar á bæ hafa fengið að fara í gegnum öll málsgögn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×