Lífið

Rekin fyrir að koma nakin fram fyrir fjörutíu árum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jacqueline Laurent-Auger missti nýverið vinnuna í Bréfeuf-skólanum í Montreal í Kanada eftir að upp komst að hún hefði komið nakin fram í kvikmyndum.

Jacqueline flutti til Parísar seint á sjöunda áratug síðustu aldar og vann fyrir sér sem leikkona. Hún var meðal annars nakin í kvikmyndinni Le Journal Intime D'une Nymphomane.

Nemendur hennar komust að þessu og ákváðu skólastjórnendur að reka hana sem leiklistarkennara eftir fimmtán ára starf en Jacqueline er 73ja ára.

Ákvörðun skólastjórnenda hefur verið afar umdeild en rúm fjörutíu ár eru síðan Jacqueline kom síðast nakin fram í kvikmynd.

„Það að reka einhvern fyrir eitthvað sem þeir gerðu fyrir næstum því fimmtíu árum síðan er fáránlegt. Það gerir mig reiða,“ segir Jacqueline í samtali við The Globe and Mail.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×