Lífið

Reka upp kollinn í miðbænum

Ragnhildur Jónsdóttir og Heiður Reynisdóttir halda Pop Up-markað um helgina. Vörurnar sem þær selja eru bæði fallegar og umhverfisvænar og þeirra er því hægt að njóta með góðri samvisku.
Ragnhildur Jónsdóttir og Heiður Reynisdóttir halda Pop Up-markað um helgina. Vörurnar sem þær selja eru bæði fallegar og umhverfisvænar og þeirra er því hægt að njóta með góðri samvisku. Mynd/Edda Hersir Sigurjónsdóttir
Ragnhildur Jónsdóttir og Heiður Reynisdóttir voru kynntar fyrir hvor annarri fyrir stuttu og ákváðu í kjölfarið að setja upp Pop Up-markað. Þar verður meðal annars hægt að kaupa fallega og umhverfisvæna gjafavöru og barnasamfellur.

Ragnhildur rekur fyrirtækið Jónsdóttir & Co og Heiður rekur vefverslunina Íslenzka pappírsfélagið. Báðar selja þær vörumerki sem leggja áherslu á Fair Trade og umhverfisvæna framleiðslu.

Upphaf vinskapar og samstarfs þeirra tveggja má rekja til Ólafar Birnu Garðarsdóttur sem fannst nauðsynlegt að kynna þær.

„Ólöf Birna rekur Reykjavík Letterpress og er vinkona Ragnhildar. Henni fannst ómögulegt að við þekktumst ekki og leiddi okkur saman á vinnustofu sinni nú í haust. Við Ragnheiður náðum vel saman og ákváðum í kjölfarið að fara á stefnumót og afraksturinn er þessi góði vinskapur og góða samstarf. Við ákváðum svo fyrir stuttu að halda Pop Up-verslun því þá getum við boðið lægra verð og þá nýtur viðskiptavinurinn góðs af," útskýrir Heiður.

Íslenzka pappírsfélagið hefur verið starfrækt í nokkra mánuði og segir Heiður hvatann að stofnun verslunarinnar vera þann að henni fannst vanta meira úrval af umhverfisvænum vörum í korta og gjafapappírs flóruna hér á landi.

Jónsdóttir & Co er sömuleiðis nýtt fyrirtæki sem selur ungbarnasamfellur úr umhverfisvænu efni. Á markaðnum verður hægt að kaupa vörur á borð við sápur, gjafavöru til heimilisins og gjafapappír ásamt fallegum kortum fyrir öll tilefni.

Markaðurinn verður á Laugavegi 97 og verður opinn bæði laugardag og sunnudag frá klukkan 11 til 17.

sara@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×