Reitir greiða upp 13 milljarða króna lán Atli Ísleifsson skrifar 23. október 2014 10:59 Tómas Sigurðsson, yfirlögfræðingur Íslandsbanka; Vilhelm Már Þorsteinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Íslandsbanka; Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita og Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Mynd/Reitir
Fasteignafélagið Reitir hefur í dag greitt lokagreiðslu tveggja lána við erlendan lánveitenda sinn, Hypotheken-bank Frankfurt AG, að fjárhæð um 85 milljónir evra, jafngildi um 13 milljarða króna. Uppgreiðsla lánanna er að stærstum hluta fjármögnuð með nýju langtímaláni frá Íslandsbanka að fjárhæð 11 milljarðar króna en samningar þess efnis voru undirritaðir í höfuðstöðvum bankans þann 20.október síðastliðinn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reitum. „Uppgreiðsla erlendu lánanna er fyrsta skrefið í heildarendurfjármögnun Reita. Í júní 2013 var undirrituð viljayfirlýsing um kaup Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, Gildis lífeyrissjóðs og Eignastýringar fagfjárfesta hjá Arion banka á nýju hlutafé í Reitum að fjárhæð 12 milljarðar króna og nýjum verðtryggðum skuldabréfaflokki útgefnum af félaginu að fjárhæð 25 milljarðar króna. Á sama tíma var gert samkomulag við Íslandsbanka um allt að 14 milljarða lánveitingu til félagsins. Heildarfjármögnun Íslandsbanka gagnvart Reitum verður því um 25 milljarðar þegar endurfjármögnun félagsins er lokið. Um er að ræða hagstæðari kjör en eru á núverandi fjármögnun félagsins. Stefnt er að því nú að heildarendurfjármögnun Reita verði lokið fyrir árslok 2014. Horft er til þess að skrá hlutafé félagsins á Nasdaq OMX á Íslandi fyrrihluta ársins 2015, ef framangreindar forsendur ganga eftir. Framkvæmd framangreinds hefur beðið úrlausnar málefna Reita og erlenda bankans en uppgreiðsla lánanna sem greidd voru upp í dag varð heimil eftir að niðurstaða fékkst í viðræður við Seðlabanka Íslands og erlenda bankans vegna lánanna. Þær viðræður höfðu tekið langan tíma, en Seðlabankinn hóf í lok ársins 2012 rannsókn á því hvort viðaukar umræddra lánasamningana hefðu brotið gegn ákvæðum laga um gjaldeyrismál. Sátt náðist í málinu í júní 2013, síðan þá hefur verið unnið að úrlausn sáttarinnar með erlenda bankanum.“ Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, segir félagið vera afar ánægt með þá niðurstöðu sem fengin er í endurfjármögnun félagsins og hlakka til samstarfsins við Íslandsbanka. „Það er mikilvægt fyrir alla hlutaðeigandi aðila, hvort sem eru eigendur, viðskiptavinir, starfsfólk eða samkeppnisaðilar, að stærsta fasteignafélag landsins sé virkur þáttakandi á markaði með atvinnuhúsnæði. Rekstur Reita hefur gengið vel undanfarin ár og mikil reynsla og þekking er til staðar hjá félaginu hvað varðar daglega starfsemi þess. Félagið sjálft og innviðir þess, er því vel undirbúið undir skráningu. Stjórnarhættir hafa farið í gegnum gagngera endurskoðun og þeir aðlagaðir eftir þörfum að kröfum sem gerðar eru til skráðra félaga. Þá hafa allir helstu verkþættir verið skráðir og áhættugreiningar unnar.“ Vilhelm Már Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Íslandsbanka, segir bankann ánægðan með að hafa fengið tækifæri til að styðja enn frekar við rekstur Reita með þessari nýju lánveitingu. „Þetta er mikilvægt fyrsta skref í heildarendurfjármögnun félagsins sem lýkur vonandi fyrir áramót.“ Reitir fasteignafélag er stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði útleigu á atvinnuhúsnæði. Fasteignasafn Reita samanstendur af um 410.000 fermetrum í 130 fasteignum. Meðal þekktra fasteigna má nefna Kringluna, Hótel Hilton, Kauphallarhúsið, Holtagarða og nokkrar af perlum íslenskrar byggingarsögu í miðbæ Reykjavíkur.
Mest lesið Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Viðskipti innlent Guðbjörg orðin pítsudrottning Viðskipti innlent Finnur þægilegu heimatilfinninguna þegar hann lendir í Keflavík Atvinnulíf Eyjólfur vill halda formennsku áfram Viðskipti innlent Tekur við stöðu forstjóra Securitas Viðskipti innlent Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Viðskipti innlent Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða Neytendur FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Neytendur Spánski verður Daisy Viðskipti innlent Toyota sýnir úrvals fyrirtækjabíla á Verk og vit Samstarf Fleiri fréttir Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Spánski verður Daisy Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar Byggingaframkvæmdir óralangt frá settum markmiðum Taka við stjórnendastöðum hjá Advania Benedikt tekur við af Andrési hjá SVÞ Tveir stjórnarmenn og forstjóri lögðu til milljarð Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Viðræður vegna kaupa á Lyfju að hefjast Dómari þarf ekki að víkja vegna fjölskyldutengsla í máli feðga Skorti heildarmynd í Landsbankamálinu Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Markaðstorg með raforku spretta upp KEA nú stærsti hluthafinn í Norlandair Fjögurra stjörnu hótel opni við Skógarböðin Hákon nýr öryggisstjóri Arion Fyrrverandi forstjóri Bláfugls stýrir nýju sviði hjá Play Hafa tapað milljörðum vegna endurtekinna lokana Segir yfirlýsingu bankaráðsins „auma“ Bankasýslan hafi ekki gert athugasemdir við tilboð í TM Munu skoða að losna strax við TM Þriggja mínútna símtal uppfylli ekki skýran samning Öllu bankaráði Landsbankans skipt út Stefna Eimskip: Tjón Samskipa gæti hlaupið á milljörðum króna Spá því að verðbólga hjaðni Sjá meira