Reiknar með stöðugri krónu fram að áramótum 28. október 2010 12:17
Gjaldeyrishöftin og talsverður afgangur af vöruskiptum við útlönd eru meðal þeirra þátta sem valda því að greining Íslandsbanka reiknar með tiltölulega stöðugri krónu það sem eftir lifir árs.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að rólegt hefur verið á millibankamarkaði með gjaldeyri það sem af er októbermánuði og hafa viðskipti með gjaldeyri verið afar strjál, sem er í takti við þróunina undanfarin misseri.Þannig nemur heildarveltan á millibankamarkaði frá 1. til og með 25. október 1.477 milljónum kr. og þar af eru viðskipti Seðlabanka Íslands 699 miljónir kr., eða sem jafngildir rétt rúmlega 47% af heildarveltunni. Bendir þetta til þess að veltan verði nokkuð minni í þessum mánuði en í síðasta mánuði þegar hún var 2.594 milljónum kr., en kaup Seðlabankans með gjaldeyri voru þá um 53% af heildarveltunni.Jafnframt er þetta mun minni velta en í október í fyrra en þá nam heildarveltan á millibankamarkaði tæpum 8 milljörðum kr. og var því ríflega fimmfalt meiri en veltan hefur verið þennan mánuðinn.Nú kostar evran á innlendum millibankamarkaði um 155 kr. sem er svipað og hún kostaði í byrjun októbermánaðar. Jafnframt hefur Bandaríkjadollar á fyrrnefndum markaði lítið breyst það sem af er mánuðinum og kostar nú rúmar 112 kr., en sú veiking sem átti sér stað á dollar um miðjan mánuðinn hefur komið nokkuð til baka. Gengisvísitala krónunnar, sem vegur saman verð gjaldmiðla helstu viðskiptaþjóða Íslands gagnvart krónunni, stendur í 205,7 sem er svipað gildi og hún stóð í byrjun mánaðarins.„Við teljum að sem stendur sé ekki mikil innistæða til styrkingar krónunnar á næstu vikum. Má hér nefna að horfur er minna innflæði ferðamannagjaldeyris á næstunni og jafnframt meira útflæði vegna lánahreyfinga. Í því samhengi má benda vaxtagreiðslur vegna erlendra lána Orkuveitunnar og annarra opinberra aðila. Auk þess kunna regluleg kaup Seðlabankans á gjaldeyri að hafa áhrif þrátt fyrir að bankinn leitist við að haga kaupunum með þeim hætti að áhrif þeirra verði sem minnst á gengi krónunnar," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira