Erlent

Reikna með áhorfsmeti þegar Hillary og Trump mætast í nótt

Atli Ísleifsson skrifar
Sjaldan hefur áhuginn á kappræðum tveggja forsetaframbjóðenda verið meiri.
Sjaldan hefur áhuginn á kappræðum tveggja forsetaframbjóðenda verið meiri. Vísir/AFP
Ekki er útilokað að áhorfsmet verði slegið þegar kappræður Hillary Clinton og Donald Trump fari fram í nótt. Sjaldan hefur áhuginn á kappræðum tveggja forsetaframbjóðenda verið meiri.

Blikur eru á lofti varðandi hvað kappræðurnar milli þeirra Hillary og Trump verði margar fram að kosningunum þann 8. nóvember. Ekkert gerir frambjóðendum skylt að taka þátt í kappræðum og hefur Trump lýst því yfir að NFL-leikir og óásættanlegir stjórnendur kappræðna séu nægar ástæður til að hætta við þátttöku.

Í nýlegri grein Washington Post kemur fram að milli fimm og tíu prósent kjósenda hafi enn ekki gert upp hug sinn. Margir þeir sem sýna kosningum minnstan áhuga byrja ekki að setja sig inn í málin fyrr en í öðrum eða jafnvel þriðju kappræðunum. SVT greinir frá því að stjórnmálaskýrendur hafi margir velt því fyrir hvað Trump hafi að græða á þátttöku í kappræðunum, en Trump þarf nauðsynlega á atkvæðum óákveðinna kjósenda að halda.

Bandaríska blaðið heldur áfram og lýsir að það kunni að reynast afleikur hjá Trump að taka þátt í mörgum kappræðum þar sem þar kunni að birtast kjósendum að Trump skorti skýra stefnu í mörgum málum.

Aðrir benda á að Hillary hafi mestu að tapa í kappræðum kvöldsins. Hún og hennar stuðningsmenn hafi dregið upp mynd af Trump sem skaphundi sem sé ekki treystandi til að stýra landinu. Komist hann áfallalaust í gegnum 90 mínútna kappræður kunna margir hins vegar að halda að hann sé ef til vill ekki svo vitlaus og margir vilja láta í veðri vaka.

Áhorfsmetið þegar kemur að kappræðum bandarískra forsetaframbjóðenda eiga þeir Ronald Reagan og Jimmy Carter þegar þeir mættust í einu kappræðum sínum fyrir kosningarnar 1980. Þá fylgdust um 80,6 milljónir manna með. Búist er við að um 100 milljónir fylgist með í nótt.

Kappræðurnar hefjast klukkan eitt að íslenskum tíma í nótt. Meðal annars verður hægt að fylgjast mðe kappræðunum á vef Time.


Tengdar fréttir

Ted Cruz lýsir yfir stuðningi við Donald Trump

Ted Cruz, sem sóttist eftir útnefningu sem forsetaefni Repúblikana en laut í lægra haldi fyrir Donald Trump, tilkynnti á Facebook-síðu sinni i kvöld að hann styðji fyrrverandi keppinaut sinn í kapphlaupinu að Hvíta húsinu og ætli að kjósa Trump sem forseta fremur en Hillary Clinton.

Zach Galifianakis grillaði Hillary Clinton

Hillary Clinton var gestur leikarans Zachs Galifianakis í spjallþættinum Between Two Ferns sem frumsýndur var í dag á vefsíðunni Funny or Die.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×