Bílar

Reiðir ökumenn

Finnur Thorlacius skrifar
Það vill stundum gerast að ökumenn reiðist öðrum vegfarendum í umferðinni og sýni reiði sína með flautuþeytingum eða miður skemmtilegum merkjasendingum. Óalgengara er að sjá tvo ökumenn svo ósátta hvor við annan að þeir aki stöðugt hvor á annan.

Kannski er svona háttarlag bara daglegt brauð í Taiwan, en þar náðist myndband af þessum tveimur reiðu ökumönnum. Ökumenninrir virðast vera að berjast fyrir plássi á einni ákveðinni akrein hraðbrautar þar eystra og hvorugur vill gefa sig. Það veldur því að þeir aka bílum sínum þétt utan í hvor öðrum með tilheyrandi skemmdum á bílunum.

Svo virðist sem ökumaður Audi bílsins sé ákveðnari í sínum aðgerðum og ósáttari en hinn og á endanum tekur hann uppá því að þrýsta hinum bílnum, sem sýnist vera af Suzuki gerð, út í steypta veggirðingu vegarins. Eitthvað hefur verðgildi beggja bílanna lækkað við þessi ósköp og svo virðist sem lögmál frumskógarins gildi í umferðinni í Taiwan ef þessar aðfarir eru þar daglegt brauð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×