Innlent

Reiðhjólabændur brugðust fljótt við hjálparbeiðni BUGL

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Einn sjálfboðaliðinn við störf á BUGL í dag.
Einn sjálfboðaliðinn við störf á BUGL í dag. mynd/eva ólafsdóttir
Sjálfboðaliðar úr Facebook-hópnum Reiðhjólabændur komu á barna-og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL) í dag, föstudag, til að laga hjól í eigu deildarinnar. Hjólin verða notuð sem hluti af meðferð unglingahóps á legudeild BUGL.

„Við vildum setja inn meiri hreyfingu í hópinn en þegar við fórum að kíkja á hjólin kom í ljós að þau voru nú í alls konar ástandi,“ segir Eva Ólafsdóttir, félagsráðgjafi á BUGL, í samtali við Vísi. Á hjólin hafi meðal annars vantað keðjur, bremsuvíra og bjöllur.

Eva leitaði því á náðir Reiðhjólabænda í vikunni til að athuga hvort einhverjir þar gætu komið og yfirfarið hjólin og jafnvel lagað þau. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Á nokkrum mínútum hafði fjöldi manns haft samband við Evu.

„Á miðvikudaginn kom einn sjálfboðaliði til að yfirfara hjólin og svo í dag hefur verið hér rennerí af fólki sem hefur græjað og lagði hjólin okkar. Sumir hafa komið með varahluti og slöngur og svo gaf hjólreiðaverslunin Örninn okkur bremsuvíra, ljós og fleira. Einn sjálfboðaliðinn kom með bjöllur sem hann hafði keypt og vildi gefa okkur. Hann sagði okkur að sjálfur hefði hann greinst með ADHD á fullorðinsaldri og fullyrti að hjólreiðar hefðu hjálpað honum mikið við að hreinsa hugann og fókusera,“ segir Eva.

Allt útlit er fyrir að hjólin verði fullbúin um helgina og ef á þarf að halda bíða fleiri sjálfboðaliðar á hliðarlínunni. Alls átti BUGL fimm hjól og þá fékk deildin eitt hjól til viðbótar gefins frá einum reiðhjólabónda.

„Við erum alveg í skýjunum yfir þessum viðbrögðum og afskaplega þakklát þeim sem hafa lagt okkur lið.“

Það þurfti meðal annars að laga bremsuvíra og keðjur á hjólunum.mynd/eva ólafsdóttir
Einn sjálfboðaliðinn hafði keypt bjöllur sem hann gaf deildinni.mynd/eva ólafsdóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×