Enski boltinn

Reid sagði nei við Arsenal og Tottenham

Reid í leik með West Ham.
Reid í leik með West Ham. vísir/getty
Varnarmaðurinn sterki, Winston Reid, kom mörgum á óvart er hann ákvað að skrifa undir nýjan samning við West Ham.

Þessi strákur frá Nýja-Sjálandi hefði orðið samningslaus í sumar og var undir smásjá bæði Arsenal og Tottenham meðal annars. Hann ákvað samt að skrifa undir nýjan sex og hálfs árs samning við Hamrana.

„Þetta tók sinn tíma en við náðum saman. Hér finnst mér ég vera í miklum metum og því vildi ég vera hérna áfram," sagði Reid.

Stjórinn hans, Sam Allardyce, sagði á dögunum að West Ham ætti enga möguleika á að halda honum en Reid kom honum á óvart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×