Reglurnar eiga ekki við um formann Icelandair Jóhann Óli Eiðsson skrifar 7. mars 2017 06:45 Úlfar Steindórsson hefur verið í stjórn Icelandair frá 2010 og var kjörinn formaður hennar á föstudag. vísir/hanna
Ekki hefur verið rætt um að Úlfar Steindórsson láti af stjórnarsetu í Lífeyrissjóði verslunarmanna (LV) eftir að hann var kjörinn stjórnarformaður Icelandair. LV á um fimmtán prósenta hlut í flugfélaginu. Úlfar er tilnefndur til stjórnarsetu í LV af Samtökum atvinnulífsins. Á stjórnarfundi SA í upphafi árs voru samþykktar reglur um tilnefningar samtakanna í stjórnir lífeyrisjóða. Í fjórðu grein þeirra segir að stjórnarmenn skuli ávallt huga að eigin hæfi og gæta þess að ekki skapist hætta á hagsmunaárekstrum. Þá skulu stjórnarmenn tilnefndir af SA ekki gefa kost á sér til stjórnarsetu í félögum þar sem viðkomandi lífeyrissjóður tilnefnir stjórnarmenn, beitir atkvæðarétti í stjórnarkjöri eða á þátt í tilnefningu stjórnarmanns. Reglurnar tóku gildi 1. janúar 2017. Úlfar var endurkjörinn í stjórn Icelandair, tveimur mánuðum eftir að reglurnar tóku gildi, síðastliðinn föstudag en hann hefur setið í stjórninni síðan 2010. Hann var kjörinn formaður af nýrri stjórn. Aðspurður sagði Úlfar að það væru engar reglur eða lög sem gerðu kröfu um að hann hætti í stjórn LV í kjölfar kjörsins. „Ég vissi ekki af reglunum. Hefði ég vitað af þeim hefði ég sagt svo,“ segir Úlfar eftir að honum var bent á ákvæði hinna nýju reglna. Það hafi ekki verið rætt við hann um málið enda stutt síðan aðalfundur Icelandair var haldinn. „Þegar ég var beðinn um að setjast í stjórn LV þá var ég fyrir í stjórn Icelandair. Ef SA hafa sett þessar reglur þá hljóta þeir að koma til mín og láta mig vita af þeim.“ Fyrir tveimur vikum auglýsti SA eftir stjórnarmönnum í lífeyrissjóði. Samtökin skipa helming stjórnarmanna í þeim sjö lífeyrissjóðum sem eru á samningssviði aðila og er framkvæmdastjórn SA falin tilnefning stjórnarmanna. Sérstök hæfisnefnd fjallar um einstaklinga sem gefið hafa kost á sér til stjórnarstarfa. „Við hugsuðum reglurnar fyrir nýja stjórnarmenn sem við myndum skipa eftir setningu reglnanna en ekki fyrir eldri stjórnarmenn,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA. Ekki hafi verið farið yfir stöðu Úlfars en það komi til greina.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Neytendur Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira