Reglur um auglýsingaskil á Vísi

Vísir Forsíða 24. maí 2012 00:01

Svo auglýsendur geti fengið tölfræðilegar upplýsingar um virkni auglýsinga sinna þarf að vera til staðar svokallaður clickTAG kóði í borðum. visir.is setur kröfu um að þetta sé gert við allar flash auglýsingar sem birtar eru á vefnum. Með þessum hætti getur visir.is gefið auglýsendum upplýsingar um fjölda smella á auglýsingar.


ActionScript 2



on (release) {
if (_level0.clickTAG.substr(0, 4) == "http") {
getURL(_level0.clickTAG, "_blank");
} else {
if (_level0.url.substr(0, 4) == "http") {
getURL(_level0.url, "_blank");
} else {
getURL("http://www.ykkarSlod.is", "_blank");
}
}
}

ActionScript 3


Athugið að "instance" nafn takka (button) er "myButton"

var _url:String = "";
if (LoaderInfo(root.loaderInfo).parameters.clickTAG) {
_url = LoaderInfo(root.loaderInfo).parameters.clickTAG;
myButton.addEventListener(MouseEvent.MOUSE_UP, handleMouse);
}
function handleMouse(event:MouseEvent):void {
navigateToURL(new URLRequest(_url), "_blank");
}

Almennt um borða auglýsingar á Vísi


  • Borði á að vera á JPG, PNG eða SWF formi
  • Öllum SWF (Flash) borðum skal fylgja "Fallback" borði á JPG, PNG eða GIF formi.
  • Borði verður að vera 70Kb eða léttari.
  • Borði verður að vera af þeirri stærð sem auglýsingaplássið er gefið upp fyrir
  • Borða má ekki stækka út fyrir skilgreint auglýsingasvæði nema það sé sérstaklega um það samið. Undantekningar frá þessu eru einungis veittar í ákveðnum auglýsingaplássum
  • Borði má ekki innihalda virkni sem veldur of miklu álagi á tölvu viðkomandi notanda
  • Borði má ekki stela músarbendlinum
  • Hljóð í borða má aðeins spila ef að notandi smellir á þar til gerðan link / hnapp
  • Allir borðar eiga að nota ClickTAG
  • Hafa þarf neðst layer í þeim lit sem óskað er eftir til að koma í veg fyrir að banner verði gegnsær.
  • Hægt er að auka virkni borða með því að sækja efni frá utanaðkomandi vefþjóni. Þetta á við um myndir, hljóðskrár og myndbönd. Við hvetjum borðahönnuði til að gera þetta þar sem að það léttir vefinn mikið þegar honum er fyrst hlaðið upp.
  • Ef auglýsingin krefst niðurhals frá öðrum vefþjóni verður að tryggja að vefþjónninn sé rekstrarlega öruggur og niðurhalið valdi ekki truflunum á Vísi, né hjá notandanum sjálfum.
  • Linkur á lendingarsíðu verður að fylgja með bannerum sem eru að fara í birtingu.

Gardínuborði í haus

Allar sömu reglur gilda um gardínuborða á Vísi sem gilda um almenna borða. Þó þarf að hafa í huga nokkur lykilatriði.

  • Í minnstu stærð er borðinn 982px á breidd og 30px á hæð. Í honum skal vera hnappur/hlekkur sem kallar á Javascript fallið: visir_gardina_opna() sem við notum til þess að opna stærri borðann.
  • Í stækkaðri útgáfu er hann 982px á breidd og 350px á hæð og flæðir þá yfir efstu fréttirnar. Í honum skal vera hnappur sem kallar á Javascript fallið: visir_gardina_loka() sem við notum til þess að loka stærri borðanum og birta þann minni.
  • Borðinn má ekki stækka nema notandi smelli á hann.
  • Ef að borðinn notar hljóð- eða myndband verður að vera skýrt hvernig notandinn stoppar myndbandið eða slekkur á hljóði.
  • Skilt er að hafa "Loka" möguleika ef að notandinn vill loka borðanum og halda áfram að lesa fréttir.
  • Öll myndbönd og hljóðbrot skulu hýst á vefþjóni utan Vísis. Hafa ber ákvæði um rekstraröryggi í huga, sem talað er um ofar í þessum texta. Hægt er að semja um að Vísir hýsi myndböndin og er þá greitt sérstaklega fyrir það.
  • Öll Javascript skulu hýst á vefþjóni Vísis og yfirfarin af tæknimönnum Vísis til að tryggja rekstraröryggi vefsins.
  • Skil á gardínuborða skulu vera fyrir kl 12 á hádegi tveim dögum fyrir áætlaða birtingu.

Skil og skila tími auglýsinga


Innköllunardeild auglýsinga er opin frá 09:00-17:00 alla virka daga.

Áríðandi er að skilafrestur sé virtur og að allar auglýsingar séu komnar fyrir þann tíma, ef ekki þá falla þær utan hefðbundinnar innsetningar og eru þær þá á ábyrgð sendanda/auglýsanda.

Skilafrestur er fyrir kl. 16:00 einum virkum degi fyrir birtingu á hefðbundum borðum, en gardínuborðum þarf að skila eigi síðar en 48 tímum fyrir (tveim virkum dögum) fyrir birtingu.

Ef séð er að auglýsing verður ekki tilbúin fyrir skilafrest verður að sækja sérstaklega um frest. Þá skal gefa upp gsm síma hjá þeim sem sendir auglýsinguna og tímasetningu þ.e. hvenær talið er að auglýsingin berist.

365 miðlar ehf áskilur sér rétt til þess að hafna birtingu á auglýsingaborðum uppfylli þeir ekki ofangreindar kröfur.


Fleiri fréttir - Forsíða

Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil

Skoðun

Slegist við strámann á Fjöllum

Slegist við strámann á Fjöllum

Hjörleifur Sveinbjörnsson
Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðanir, rökræða ekki...

Skoðun

Kostur á kjarabót

Kostur á kjarabót

Ólafur Þ. Stephensen
Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúðalánasjóðs og ba...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Reglur um auglýsingaskil á Vísi