Erlent

Refsing Pistoriusar ákveðin í dag

Vísir/AFP
Dómarinn í máli Suður afríska spretthlauparans Oscars Pistoriusar mun innan tíðar ákvarða refsingu hans fyrir að skjóta unnustu sína Reevu Steenkamp til bana.

Undanfarna daga hafa saksóknari og verjendur sagt sína skoðun á því hve langan dóm hann skuli fá og vill saksóknari að hann dúsi í fangelsi í að minnsta kosti áratug.

Verjendur hans fóru hinsvegar fram á að hann verði settur í stofufangelsi og dæmdur til að sinna samfélagsþjónustu. Málið hefur vakið mikla athygli en Pistorius var á endanum dæmdur fyrir manndráp af gáleysi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×