Handbolti

Refirnir hans dags með fimm marka forystu

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Dagur Sigurðsson
Dagur Sigurðsson vísir/getty
Þýska úrvalsdeildarliðið Füchse Berlin sem Dagur Sigurðsson þjálfar lagði franska liðið Nantes 23-18 í fyrri leik liðanna í þriðju umferð EHF-bikarsins í Þýskalandi í dag.

Refirnir hans Dags fara því með fimm marka forystu til Frakklands en seinni leikurinn verður leikinn um næstu helgi. Füchse Berlin var tveimur mörkum yfir í hálfleik 10-8.

Fredrik Petersen var markahæstur hjá Füchse með 6 mörk og Jesper Nielsen skoraði 5. Nicolas Claire skoraði 8 mörk fyrir Nantes og Valero Rivera 5.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×