Handbolti

Refirnir auðveld bráð ljónanna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alexander Petersson skoraði tvö í dag.
Alexander Petersson skoraði tvö í dag. Vísir/Getty
Füchse Berlin, lið Dags Sigurðssonar, er fallið niður í áttunda sæti þýsku úrvalsdeildarinnar eftir tíu marka tap fyrir Rhein-Neckar Löwen á heimavelli, 30-20.

Löwen var með tveggja marka forystu í hálfleik en komst mest ellefu mörkum yfir í síðari hálfleik. Niklas Landin átti stórleik í marki Löwen og sigur liðsins aldrei í hættu. Alexander Petersson skoraði tvö marka Löwen og Stefán Rafn Sigurmannsson eitt.

Kiel og Löwen eru jöfn á toppi deildarinnar með 32 stig hvort en Kiel vann í dag öruggan sigur á Hannover-Burgdorf, 34-25. Kiel á þó leik til góða. Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Kiel og Rúnar Kárason eitt fyrir Hannover-Burgdorf.

Magdeburg, lið Geirs Sveinssonar, heldur fjórða sæti deildarinnar eftir sigur á Minden á heimavelli, 28-22.

Úrslit dagsins:

Wetzlar - Flensburg 22-22

Magdeburg - Minden 28-22

Kiel - Hannover-Burgdorf 34-25

Hamburg - Lemgo 28-32

Füchse Berlin - Rhein-Neckar Löwen 20-30




Fleiri fréttir

Sjá meira


×