Innlent

Refir skila tekjum

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar
Ester Rut Unnsteinsdóttir
Ester Rut Unnsteinsdóttir
Oftast er rætt um vá og veiðar þegar refurinn kemst í umfjöllunina. Aðstandendur Melrakkaseturs segja hins vegar að refurinn sé auðlind sem vert sé að huga að.

„Það komu um tvö þúsund í júní og júlí verður ekki síðri,“ segir Jónas Gunnlaugsson, rekstrarstjóri Melrakkasetursins í Súðavík. Til samanburðar má geta þess að allt árið í fyrra komu um sex þúsund gestir.

Hann segir flesta gestina koma erlendis frá og marga hafa komið til landsins einungis til að kynnast refnum. „Þetta er náttúrulega alveg einstakt, að geta komist í návígi við villt dýr,“ segir Ester Rut Unnsteinsdóttir frá Náttúrufræðistofnun Íslands, en hún hefur staðið að rannsóknum á svæðinu.

Gæfur melrakki á HornströndumSumir hafa orðið hvekktari með auknum ágangi en þessi lætur sér vel lynda athyglina.mynd/melrakkasetur íslands
Tveir erlendir rannsóknarnemendur eru nú að kanna hver efnahagslegur ávinningur landsins gæti verið af ferðum fólks sem kynnast vill refnum hér á landi. Niðurstöðu er að vænta með haustinu.

Á safninu er fólk einnig frætt um refaveiðar og segir Ester Rut að mörgum þyki undarlegt hversu halli á refinn í umræðunni og sambýlinu við landann. Þau Ester Rut og Jónas eru sammála um að kominn sé tími til að ræða um refinn á öðrum nótum en að þar fari aðeins vargur og veiðibráð. Reyndar erum við hálfgerður viðkomuflokkur í samanburði við þetta dýr sem verið hefur hér frá því skömmu eftir að ísa leysti eftir ísöldina.

Ekki eru ferðamenn einir um áhugann því margar heimildarmyndir hafa verið teknar upp á Hornströndum þar sem skolli er í aðalhlutverki. Nú hefur tökulið frá BBC nýlokið tökum þar. „Svo var ég að fá erindi frá japönskum aðilum sem vilja hefja tökur,“ segir Ester Rut.

Hún er nýkomin úr rannsóknarleiðangri á Hornströndum og ekki eru öll gögnin góð sem úr honum fengust. Til dæmis fann hún kjálkabein af ref sem í voru haglagöt. „Þetta er ekkert nýtt,“ segir hún en áður hafa fundist óumdeild ummerki þess að veiðimenn hafi látið til sín taka á svæðinu sem hefur verið friðað í tvo áratugi. Þetta er þó algjör undantekning, segir hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×