Innlent

Réðust á þrjá drengi í Breiðholtinu

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá Breiðholti.
Frá Breiðholti. Vísir/GVA
Ráðist var á þrjá þrettán ára drengi í Breiðholti á áttunda tímanum í gærkvöldi þar sem þeir voru á heimleið frá félagsmiðstöð. Þetta kemur fram í skýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt því sem segir í skýrslunni voru það tveir menn um tvítugt ásamt einni stúlku sem réðust á drengina. Drengirnir náðu að komast frá þeim og aftur inn í félagsmiðstöðina og þau voru farin af vettvangi þegar lögregla kom.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×