Fótbolti

Réðst á Ribery með trefil að vopni - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Franck Ribery skildi ekkert hvað var í gangi.
Franck Ribery skildi ekkert hvað var í gangi. Vísir/Getty
Bayern München kom áfram í þýska bikarnum í gær eftir 3-1 sigur á Hamburger SV og Frakkinn Franck Ribery skoraði eitt marka liðsins.

Franck Ribery fékk hinsvegar mjög kaldar kveðjur frá einum stuðningsmanni Hamburger SV í uppbótartíma leiksins.

Sá hinn sami ruddist inn á völlinn vopnaður Hamburger SV trefli og réðst að Ribery. Ribery varð þó fyrst reiður þegar árásamaðurinn sýndi honum miður fallega fingraleikfimi.

„Ég skildi ekkert hvað var í gangi. Þetta var erfið upplifun fyrir mig," sagði Ribery við Bild eftir leikinn. Það má sjá myndir frá þessu hér fyrir neðan.

Hamburger SV baðst afsökunar á atvikinu eftir leikinn.

Robert Lewandowski, David Alaba og Ribery skoruðu mörk Bayern München í leiknum en Bayern komst í 3-0 áður en Pierre-Michel Lasoggater lagaði stöðuna í lokin.

Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/AFP
Vísir/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×