Innlent

Réðst á konu fyrir utan Bar 11: „Sucker punched me in the center of my face“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Árásin varð utan við Bar 11 aðfaranótt laugardags.
Árásin varð utan við Bar 11 aðfaranótt laugardags. Mynd/Heimasíða Bar 11
„Ég er mjög niðurdregin enda hef ég notið síðustu tveggja mánaða á Íslandi og vil ekki að þetta atvik eyðileggi minningar mínar héðan,“ segir myndlistarkonan Rosalie Smith sem varð fyrir árás á göngu ásamt vinkonu sinni í miðbæð Reykjavíkur aðfaranótt laugardag.

Rosalie, sem er listakona frá Bandaríkjunum, var á gangi ásamt vinkonu sinni á Hverfisgötu við Bar 11 um klukkan 4:45 um nóttina þegar fullur karlmaður vatt sér upp að þeim. Segir hún manninn hafa óskað eftir því, bæði á íslensku og ensku, að þær stunduðu kynmök með sér.

„Áreitni sem þessi er því miður alltof algeng í borgum heimsins. Vinkona mín reyndi að fá hann til þess að yfirgefa svæðið en leiddist þófið og sló hann utanundir,“ skrifar Rosalie á Facebook. Í kjölfarið hafi maðurinn slegið vinkonu hennar svo fast í andlitið að augnlinsur hennar hafi fallið úr augum hennar.

„Ég komst í svo mikið uppnám að ég svaraði í sömu mynt. Ég vildi að ég hefði ekki svarað með ofbeldi,“ segir Rosalie. Maðurinn hafi svo svarað á móti að honum væri nákvæmlega sama þótt hún væri kona.

„Fávitinn sló mig í mitt andlitið og úr varð glóðurauga, skurður og líklega brotið nef,“ segir Rosalie. Hún hafi fallið til jarðar um leið og lýsir því þannig að blóð hafi fossað úr nefi sínu. Það sem eftir lifi nætur sé í móðu. Sem betur fer hafi hún verið með vinkonu sinni, Lindu, sem hafi farið með hana á slysadeild og kallað til lögreglu.

Rosalie segir árásina hafa vakið hana til umhugsunar um landið sem sé oft kallað „besta land í heimi fyrir konur“. Þrátt fyrir að hér eigi ofbeldi að vera af skornum skammti lendi hún í því að vera barin í klessu úti á götu. Vonast hún til að að í það minnsta verði saga hennar til þess að konur átti sig á þeirri hættu sem sé fyrir hendi á götum úti.

Þá greinir hún frá því að hún hafi kært málið til lögreglu sem leiti nú árásarmannsins og vitna.

Ekki náðist í Rosalie við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×