Fótbolti

Redknapp um Modric: „Hann er frábær leikmaður og frábær persóna“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Luka Modric er góður í fótbolta.
Luka Modric er góður í fótbolta. vísir/getty
Luka Modric fær mikið lof frá Harry Redknapp, fyrrverandi knattspyrnustjóra Tottenham, í viðtali á fótboltavefsíðunni Goal.com. Modric er aðalmaðurinn í króatíska landsliðinu sem mætir því íslenska í undankeppni HM 2018 á laugardaginn.

Goal.com er að velja 50 bestu fótboltamenn heims árið 2016 en niðurtalning hefur staðið yfir nokkrar vikur og heldur áfram fram undir lok árs. Þar er Modric, sem tvívegis hefur orðið Evrópumeistari með Real Madrid, nú síðast í maí, í 18. sæti listans.

„Hann er frábær. Hann er frábær leikmaður og frábær persóna,“ segir Harry Redknapp um fyrrverandi lærisvein sinn en Króatinn blómstraði undir stjórn þess enska og var seldur á 30 milljónir punda til Real Madrid.

„Hann æfir vel og er aldrei til vandræða. Hann er fullkominn atvinnumaður. Hann er heldur ekki með hausinn í skýjunum heldur bara virkilega góður strákur.“

Modric er einn af bestu miðjumönnum Evrópu í dag og má búast við því að strákarnir okkar eigi eftir að lenda í vandræðum með að stöðva króatíska töframanninn á laugardaginn. Það er Redknapp að þakka, nú eða kenna, að Modric hrellir lið á miðjunni.

„Modric var frábær leikmaður fyrir mig. Hann var að spila úti á vinstri kantinum þannig ég færði hann inn á miðjuna og hann hefur ekki litið um öxl síðan. Sama hvað sumir segja er hann enginn léttvigtar miðjumaður,“ segir Harry Redknapp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×