Enski boltinn

Redknapp segir að Coutinho hafi misst töfrana

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jamie Redknapp, sérfræðingur Sky Sports, segir að Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho þurfi að spila betur til að Liverpool nái betri úrslitum en að undanförnu.

Liverpool náði að vísu að vinna 2-1 sigur á Burnley í gær eftir að hafa lent marki undir snemma leiks. En Coutinho var tekinn af velli í síðari hálfleik fyrir Ben Woodburn.



Coutinho byrjaði leiktíðina frábærlega og skoraði fimm mörk í fyrstu tíu leikjum sínum á tímabilinu. En hann hefur skorað aðeins eitt mark í síðustu þrettán leikjum.

„Hann var stórkostlegur í upphafi tímabilsins og gerði gæfumuninn fyrir Liverpool. En hann hefur misst töfrana að einhverju leyti og þarf að endurheimta þá. Það er hlutverk stjórans að sjá til þess að hann geri það,“ sagði Redknapp.

Liverpool mætir Manchester City á sunnudag klukkan 16.30 í afar mikilvægum leik í toppbaráttu ensku deildarinnar.

„Ég hef áhyggjur af Coutinho því hann skiptir Liverpool svo miklu máli. Ef hann spilar vel þá gerir Liverpool það líka.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×