Enski boltinn

Redknapp: Kane á að hafa hærri laun

Dagur Lárusson skrifar
Jamie Redknapp ásamt Thierry Henry.
Jamie Redknapp ásamt Thierry Henry. Vísir/getty
Jamie Redknapp, sérfræðingur hjá Sky á Englandi, segir að Harry Kane eigi skilið að fá jafn vel borgað og þeir hæstlaunuðustu í ensku úrvalsdeildinni.

Harry Kane hefur raðað inn mörkum fyrir Tottenham síðustu þrjú árin en mikið hefur verið talað um framtíð hans upp á síðkastið.

„Það er allt til alls þarna fyrir hann hjá Tottenham. Þeir eru með frábært ungt lið en þeir þurfa að veita honum sanngjörn laun samt sem áður.“

„Sama hversu há laun sá hæstlaunaðasta er með, Harry Kane á að vera með jafn há laun og hann, það er bara svo einfalt.“

Harry Kane skoraði tvö mörk fyrir Tottenham gegn West Ham í dramatískum sigri.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×