Enski boltinn

Redknapp: Hann er 20 kg of feitur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Harry Redknapp, stjóri QPR, fór engum vettlingatökum um Adel Taarabt, leikmann liðsins, á blaðamannafundi sínum eftir 3-2 tapið gegn Liverpool í dag.

Taarabt var eitt sinn hetja hjá stuðningsmönnum QPR en aðeins komið við sögu í þremur leikjum liðsins á tímabilinu til þessa.

„Nei, hann er ekki í formi,“ sagði Redknapp spurður um Taarabt. „Hann er því miður ekki í formi til að spila knattspyrnu.“

„Hann spilaði með varaliðinu um daginn og ég hefði getað hlaupið meira en hann geðri í leiknum. Þannig að nei, ég get ekki valið hann í liðið núna.“

„Ég vel þá leikmenn sem vilja reyna og eiga það skilið að vera hjá jafn góðu knattspyrnufélagi og QPR. Leikmenn sem vilja vinna, mæta á hverjum degi, æfa og eru með gott viðhorf.“

„Ég get ekki endalaust komið leikmönnum til varnar sem vilja ekki hlaupa og æfa og eru um það bil 20 kg of þungir.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×