Harry Redknapp var merkilega brattur í kvöld þó svo lið hans hafi verið niðurlægt af svissneska liðinu Young Boys í kvöld. Roman Pavlyuchenko bjargaði andliti Spurs undir lokin en Spurs tapaði samt, 3-2.
"Þetta var frábært tap ef hægt er að tala um slíkt í fótbolta. Við vorum úr keppninni í stöðunni 3-0 en eigum núna möguleika," sagði Redknapp.
"Ég verð að hrósa strákunum fyrir að koma til baka. Þetta frábæra mark frá Pav gefur okkur mikinn möguleika í seinni leiknum."
Redknapp vildi ekki kenna gervigrasinu um úrslitin þó svo hann viðurkenndi að margir leikmanna hans hefðu verið í vandræðum með völlinn.
Stjórinn gamli býst við svakalegum seinni leik á milli liðanna.
"Þetta verður stórkostlegt kvöld á White Hart Lane. Andrúmsloftið verður einstakt en leikurinn erfiður. Þetta er agað lið sem er erfitt að brjóta niður. Það eru líka fínir leikmenn í þessu liði sem kunna að sækja hratt og leggja gríðarlega hart að sér."