Fótbolti

Redknapp: Ég hef ekkert fylgst með enskum konum spila fótbolta fyrr en nú

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Eins og fleiri á Englandi fylgist Jamie Redknapp nú grannt með enska liðinu.
Eins og fleiri á Englandi fylgist Jamie Redknapp nú grannt með enska liðinu. vísir/getty
„Enskar konur að spila fótbolta. Ég verð að viðurkenna, að ég hef ekkert fylgst með þeim. Fyrr en nú.“

Svona byrjar pistill sem Jamie Redknapp, fyrrverandi landsliðsmaður Englands og núverandi sparkspekingur Sky Sports, skrifar um enska kvennalandsliðið fyrir Daily Mail.

Ensku stelpurnar hafa heillað þjóð sína upp úr skónum á HM í Kanada enda eru þær komnar, nokkuð óvænt, alla leið í undanúrslitin og búnar að vinna bæði Noreg og gestgjafa Kanada á leiðinni.

Lélegir markverðir og aumir leikmenn

„Mín sýn á kvennafótbolta var fullt af staðalímyndum; Lélegir markverðir, aumir leikmenn, mörk eftir mistök og lítill áhugi. Ég hef séð fótbolta spilaðan betur og þar voru karlmenn að verki. Afsakið, dömur,“ segir Redknapp.

„Það er svo erfitt að selja íþróttina, en stelpurnar hafa nýtt sér einfaldasta markaðstólið: Vinna leiki á HM. Farðu á HM með þitt besta lið og það er aldrei að vita, kannski fer fleira fólk að fylgjast með.“

Redknapp segist ekki vera karlremba. Hann segist elska að horfa á afreksíþróttamenn hvort sem um ræðir konur eða karla, en viðurkennir að hann hefði ekki getað nefnt margar landsliðskonur á nafn fyrir keppnina.

„Þetta mót er að breyta því. Fólk á götunni spyr mig: Sástu kvennaleikinn í gærkvöldi?“ segir hann.

Konurnar standa sig betur en karlarnir

„Þær hafa stóraukið áhugann á liðinu og við viljum vita hvort þær geti haldið þessu áfram. Kvennaliðið er allavega að standa sig betur en A-lið karlanna og U21 árs liðið sem var ömurlegt á EM.“

Redknapp er virtur og vinsæll knattspyrnusérfræðingur og því færir hann sig meira út í leikfræðina í pistlinum þar sem hann hrósar enska kvennaliðinu fyrir föst leikatriði og hversu sterkar þær voru í sigrinum á heimakonum frá Kanada.

Undir lokin segir hann svo: „Það gæti breytt öllu fyrir enskan kvennafótbolta ef England kemst lengra. Aðeins tíminn mun leiða í ljós hvort áhorfendatölur aukist eftir HM, en eins og staðan er núna er þetta sigurlið aðeins tveimur leikjum frá því að vinna HM.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×