Real vann í Þýskalandi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Vísir/Getty
Real Madrid vann stórleik umferðarinnar í Meistaradeild Evrópu í kvöld, þegar liðið heimsótti Borussia Dortmund. Lokatölur urðu 1-3 fyrir gestunum.

Cristiano Ronaldo skoraði sitt 410. mark í 400 leikjum fyrir Madrid þegar hann kom gestunum í 0-2 á 50. mínútu eftir að Gareth Bale hafði komið Evrópumeisturunum yfir í fyrri hálfleik.

Pierre-Emerick Aubameyang klóraði í bakkann fyrir heimamenn á 54. mínutu en Ronaldo bætti öðru marki sínu við og innsiglaði sigurinn á 79. mínútu.

Real hefur unnið fyrstu tvo leiki sina í H-riðli og eru með sex stig, eins og Tottenham.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira