Fótbolti

Real skoraði átta gegn nýliðunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ronaldo fagnar þriðja marki sínu í dag.
Ronaldo fagnar þriðja marki sínu í dag. Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo skoraði sína fyrstu þrennu á tímabilinu er Real Madrid fór illa með nýliða Deportivo í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Eftir fremur rólega byrjun náði Ronaldo að brjóta ísinn með frábæru skallamarki eftir sendingu Arbeloa á 29. mínútu. Við það opnuðust flóðgáttirnar en stuttu síðar skoraði Kólumbíumaðurinn James Rodriguez sitt fyrsta úrvalsdeildarmark á Spáni með stórglæsilegu skoti utan teigs.

Ronaldo bætti við sínu öðru marki skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks eftir skrautlegt úthlaup markvarðarins German Lux sem var heppinn að sleppa við rauða spjaldið eftir að hafa fellt Karim Benzema í aðdraganda marksins.

Haris Medunjanin minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks en ákvörðun Perez Montero, dómara, að dæma hendi á Sergio Ramos þótti strangur.

Gareth Bale skoraði tvívegis gegn Deportivo.Vísir/Getty
Heimamenn héldu áfram að ógna marki gestanna næstu mínúturnar en Gareth Bale gerði endanlega út um leikinn með laglegu marki á 66. mínútu eftir sendingu Marcelo. Hann bætti keimlíku marki við stuttu síðar, nú eftir sendingu Isco, og staðan orðin 5-1.

Madrídingar héldu áfram að bæta við eftir þetta. Rodriguez færði sér mistök heimamanna í vörn í nyt og lagði boltann á Ronaldo sem skoraði örugglega sitt þriðja mark og sjötta mark Real Madrid.

Varamaðurinn Touche skoraði annað mark Deportivo með laglegum skalla á 84. mínútu og minnkaði muninn í 6-2.

James Rodriguez skoraði glæsilegt mark.Vísir/Getty
Javier Hernandez, lánsmaður frá Manchester United, fékk að spila síðasta stundarfjórðunginn og nýtti tækifærið einkar vel. Hann skoraði með báðum skotum sínum í leiknum og voru mörkin einkar lagleg.

Real Madrid hefur því skorað þrettán mörk í síðustu tveimur leikjum og virðist komið á einkar gott skrið eftir slaka byrjun í spænsku úrvalsdeildinni. Liðið er nú komið með sex stig eftir fjórar umferðir og mjakast þar með upp töfluna. Deportivo er enn með fjögur stig og heimamenn vilja sjálfsagt gleyma þessum leik sem allra fyrst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×