Fótbolti

Real Madrid keypti brasilískan landsliðsbakvörð

Danilo í leik gegn Síle á dögunum.
Danilo í leik gegn Síle á dögunum. vísir/getty
Real Madrid er byrjað að styrkja sig fyrir næsta tímabil og nú er liðið búið að næla í afar sterkan bakvörð.

Real er að kaupa Brasilíumanninn Danilo frá Porto á 23 milljónir punda. Fínt verð fyrir landsliðsbakvörð Brasilíu.

Danilo hefur verið fastamaður í brasilíska landsliðinu síðan HM fór fram í Brasilíu og hefur staðið sig afar vel hjá Porto.

Hægri bakvörðurinn skrifaði undir samning til ársins 2021.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×