Fótbolti

Real Madrid ætlar að gera Beckham að sendiherra

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Beckham og Ronaldo. Tvær goðsagnir hjá Real Madrid.
Beckham og Ronaldo. Tvær goðsagnir hjá Real Madrid. vísir/getty
Spænskir fjölmiðlar greina frá því í dag að David Beckham verði gerður að sendiherra hjá Real Madrid.

Real Madrid ætlar sér meiri vinsældir í Bandaríkjunum og félagið sér fyrir sér að með aðstoð Beckham verði það talsvert auðveldara.

Beckham lék í fjögur ár með Real en spilaði einnig með Man. Utd, PSG, AC Milan og bandaríska liðinu LA Galaxy á glæstum ferli.

Beckham er stórstjarna í Bandaríkjunum en hann spilaði í fimm ár með Galaxy.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×