MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ NÝJAST 07:39

Tölvum stolið

FRÉTTIR

Ray Allen hefur áhuga á því að spila með Miami Heat

Vísir Körfubolti 26. júní 2012 17:00
Ray Allen fagnar sigurkörfu með Boston Celtics í vetur.
Ray Allen fagnar sigurkörfu með Boston Celtics í vetur. MYND/NORDIC PHOTOS/GETTY
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:

Brian Windhorst á ESPN hefur heimildir fyrir því að Ray Allen, leikmaður Boston Celtics, hafi áhuga á því að spila með Miami Heat á næsta NBA-tímabili. Allen setur það víst ekki fyrir sig að þarna séu erkifjendurnir á ferðinni sem hafa slegið Boston Celtics út úr úrslitakeppninni undanfarin tvö ár.

Það verða væntanlega peningamálin sem á endanum ráða því hvort Ray Allen gerist leikmaður Miami Heat en óvíst er hvort að hann sættist á 3 milljón dollara árslaun sem er það mesta sem Miami getur boðið honum.

Önnur félög í NBA-deildinni geta væntanlega boðið honum betri samning en í Miami er líklega einn besti möguleikinn fyrir hann að vinna meistaratitil.

Ray Allen verður 37 ára gamall í júlí en hann hefur spilaði í NBA-deildinni frá árinu 1996. Allen kom til Boston Celtics árið 2007 og vann sinn fyrsta og eina titil með liðinu 2008.

Ray Allen hefur skorað 2718 þriggja stiga körfur í NBA-deildinni sem er það mesta í sögunni en hann sló þriggja stiga met Reggie Miller í febrúar 2011.

Ray Allen glímdi við meiðsli á þessu tímabili en var með 14,2 stig í leik í deildarkeppninni og 10,7 stig í leik í úrslitakeppninin. Hann hækkaði stigaskorið sitt upp í 11,9 í úrslitum Austurdeildarinnar á móti Miami.


Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Körfubolti 19. júní 2013 07:19

Miami þvingaði fram oddaleik með ótrúlegum sigri

Miami náði að þvinga fram oddaleik í lokaúrslitum NBA-deildarinnar með hádramatískum sigri í framlengdum leik gegn San Antonio, 103-100. Meira
Körfubolti 19. júní 2013 06:15

Hörður Axel leitar að nýju liði í Evrópu

Hörður Axel Vilhjálmsson hefur fengið sig lausan undan samningi sínum við þýska úrvalsdeildarfélagið Mitteldeutscher BC og hyggst leita á ný mið. Hann útilokar að spila hér á landi á næsta tímabili. Meira
Körfubolti 18. júní 2013 21:24

James orðinn tvöfaldur NBA-meistari samkvæmt nýju skónum

Pressan á LeBron James, stórstjörnu Miami Heat, fyrir kvöldið er mikil. Ekki minnkaði hún í dag þegar út láku myndir af nýju skónum hans. Meira
Körfubolti 18. júní 2013 18:15

Börn Iverson komin aftur til móður sinnar

Körfuboltastjarnan fyrrverandi, Allen Iverson, neitar því að hafa rænt börnunum sínum sem nú eru komin aftur í umsjá móður sinnar, Tawanna. Meira
Körfubolti 17. júní 2013 22:15

Iverson sagður hafa rænt börnunum sínum

Lögreglan er nú á eftir körfuboltamanninum fyrrverandi, Allen Iverson, en hann á að hafa rænt börnunum sínum. Meira
Körfubolti 17. júní 2013 10:37

Ginobili og Green fóru á kostum | San Antonio yfir

San Antonio vann gríðarlega mikilvægan sigur á Miami Heat í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt og náði þar með 3-2 forystu í rimmunni. Meira
Körfubolti 16. júní 2013 12:18

Gull til Íslands

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum yngri en 15 ára vann í dag til gullverðlauna á boðsmóti í Kaupmannahöfn. Meira
Körfubolti 16. júní 2013 11:00

Helgi Már skoraði 20 stig gegn Danny Green

Landsliðsmaðurinn og KR-ingurinn Helgi Már Magnússon man vel eftir því þegar hann spilaði gegn Danny Green í háskólaboltanum. Meira
Körfubolti 15. júní 2013 22:45

Sektaður fyrir leikaraskap

Chris Bosh, einn af lykilmönnum Miami Heat, hefur verið sektaður um 5000 þúsund dollara fyrir leikaraskap. Meira
Körfubolti 14. júní 2013 22:15

Fjallabróðir í NBA-útsendingu

Halldór Gunnar Pálsson, tónlistarmaður og einn forsprakka Fjallabræðra, sendi kveðju sem birtist í alþjóðlegri útsendingu frá leik San Anotnio og Miami í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í nótt. Meira
Körfubolti 14. júní 2013 08:45

Jón Sverrisson gerir tveggja ára samning við Stjörnuna

Körfuknattleiksmaðurinn Jón Sverrisson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna. Meira
Körfubolti 14. júní 2013 08:00

Heat jafnar einvígið gegn Spurs

Einvígið um NBA-meistaratitilinn heldur áfram að vera gríðarlega spennandi en Miami Heat náði að jafna einvígið, 2-2, gegn San Antonio Spurs með frábærum sigri 109-93 í nótt. Meira
Körfubolti 14. júní 2013 07:16

Ægir Þór hittir fyrir Hlyn og Jakob hjá Drekunum

Körfuknattleiksmaðurinn Ægir Þór Steinarsson mun ganga til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið Sundsvall Dragons. Meira
Körfubolti 14. júní 2013 06:30

Kara kveður íslenskan körfubolta í bili

"Ég er að flytja út til Noregs í haust ásamt manninum mínum. Hann er kominn með góða vinnu og ég mögulega seinna,“ segir Margrét Kara Sturludóttir. Meira
Körfubolti 13. júní 2013 21:03

Darri kominn aftur í KR

Darri Hilmarsson er genginn til liðs við KR á ný eftir þriggja ára fjarveru en það var staðfest á heimasíðu félagsins í kvöld. Meira
Körfubolti 13. júní 2013 18:45

Óvíst með þátttöku Parker í fjórða leiknum

Tony Parker, leikstjórnandi San Antonio Spurs, er vongóður um að hann geti tekið þátt í fjórða leik liðins gegn Miami Heat í úrslitaeinvíginu um NBA-meistaratitilinn. Meira
Körfubolti 13. júní 2013 15:25

Helena á leið í 300 kílómetra hjólatúr

"Ég er nýbúin að kaupa mér alvöru hjól þannig að ég er bara að prófa mig áfram í þessu. En maður gerir þetta bara almennilega fyrst maður er að þessu," segir körfuknattleikskonan Helena Sverrisdóttir. Meira
Körfubolti 13. júní 2013 08:15

Jason Kidd ráðinn þjálfari Brooklyn Nets

Jason Kidd var í gærkvöldi ráðinn þjálfari Brooklyn Nets en hann lagði skóna á hilluna í síðustu viku. Kidd lék í 19 ár í NBA deildinni og er talinn einn besti leikstjórnandi deildarinnar frá stofnun ... Meira
Körfubolti 12. júní 2013 10:10

Mikilvægur hlekkur yfirgefur Jón Arnór og félaga

Körfuknattleiksmaðurinn Pablo Aguilar, liðsfélagi Jóns Arnórs Stefánssonar hjá CAI Zaragoza, er genginn til liðs við Valencia. Meira
Körfubolti 12. júní 2013 08:45

Pálína samdi við Grindavík til tveggja ára

Pálína María Gunnlaugsdóttir hefur samið við körfuknattleiksdeild Grindavíkur og mun hún leika með félaginu í Dominos deild kvenna á næstu leiktíð. Meira
Körfubolti 12. júní 2013 08:00

James: Ég ber ábyrgð á þessu tapi

"Við verðum að gleyma því hvað misfórst hjá okkur í kvöld og fara strax að undirbúa okkur fyrir leik fjögur,“ sagði Lebron James, leikmaður Miami Heat, eftir að lið hans hafði verið niðurlægt, 1... Meira
Körfubolti 12. júní 2013 07:23

NBA: Spurs rústaði Heat og leiðir einvígið 2-1

San Antonio Spurs kjöldró Miami Heat, 113-77, í þriðja leik liðanna í úrslitum NBA-deildarinnar. Staðan í einvíginu er nú 2-1 fyrir San Antonio Spurs. Meira
Körfubolti 10. júní 2013 18:00

Darrell Flake gengur til liðs við Tindastól

Körfuknattleiksmaðurinn, Darrell Flake, hefur gengið til liðs við Tindastól og verður því í baráttunni í 1. deildinni næsta vetur. Meira
Körfubolti 10. júní 2013 07:15

NBA: Miami jafnaði einvígið með öruggum sigri

Miami Heat vann góðan sigur, 103-84, á San Antonio Spurs í úrslitum NBA-deildarinnar. Heat jafnaði því metið í einvíginu, 1-1. Miklir yfirburðir heimamanna í síðari hálfleiknum lögðu grunninn að örugg... Meira
Körfubolti 09. júní 2013 23:30

Tveggja ára barn rústaði Shaq í vítakeppni

Shaquille O´Neal átti glæsilegan feril í NBA-deildinni en þrátt fyrir fjölda ára í deildinni náði Shaq því aldrei almennilega að hitta úr vítaskotum. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Körfubolti / Ray Allen hefur áhuga á því að spila með Miami Heat
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000