Lífið

Raunveruleikastjörnur á b5 í kvöld

Ungmennin hafa mikinn áhuga á skemmtanalífinu.
Ungmennin hafa mikinn áhuga á skemmtanalífinu. vísir/getty
Í kvöld fara fram upptökur á vinsæla raunveruleikaþættinum Geordie Shore á skemmtistaðnum b5 á Bankastræti.

Raunveruleikaþátturinn er bresk útgáfa af bandarísku þáttaröðinni Jersey Shore en báðir þættirnir eru sýndir á sjónvarpsstöðinni MTV.

Stjörnur þáttarins eru þau Aaron Chalmers, Charlotte-Letitia Crosby, Gary Beadle, Holly Hagan, Hames Tindale, Marnie Simpsons, Scott Timlin og Vikky Pattison en ungmennin er öll miklar áhugamanneskjur um skemmtanalífið og þykir fátt betra en að detta í það, dansa og hafa gaman.

Öll eru þau frá norðaustur hluta Englands en heimaslóðir þeirra eru Newcastle. Í þættinum er þeim fylgt eftir til ýmissa landa á borð við Ástralíu, Cancun, Magaluf og nú Íslands og er öllum er velkomið að taka þátt í upptökunum sem fara fram í kvöld í skemmtistaðnum b5 og hefjast klukkan 22:00.



Hér að neðan má sjá brot úr fimmtu seríu þáttanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×