Lífið

Raunveruleikastjarna fórnaði nærri tánni fyrir góðgerðarmál á Íslandi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ríkjandi meistari I'm a Celebrity Get Me Out of Here komst heldur betur í hann krappann á Íslandi í sumar.
Ríkjandi meistari I'm a Celebrity Get Me Out of Here komst heldur betur í hann krappann á Íslandi í sumar. Vísir/Getty
Breska raunveruleikastjarnan Vicky Pattinson komst heldur betur í hann krappann er hún tók þátt í fjáröflun fyrir góðgerðasamtök sem berjast gegn brjóstakrabbameini. Pattinson var stödd hér á landi í sumar sem hluti af hóp sem safnaði áheitum fyrir að ganga Laugaveginn, frá Landmannalaugum yfir í Þórsmörk. Ekki vildi betur til en að hún glataði nærri litlu tánni á leiðinni.

Pattinson, sem helst er þekkt fyrir að taka þátt í raunveruleikaþættinum Geordie Shore auk þess sem hún er ríkjandi meistari I'm a Celebrity Get Me Out of Here þáttanna, rifjaði upp reynslu sína af Laugaveginum í spjallþætti í Bretlandi á dögunum þar sem hún sagðist nærri hafa misst litlu tána á göngunni.

„Ég hafði ekki tíma til þess að ganga gönguskóna mína til,“ útskýrði Pattinson. „Ég var því berfætt í skónum á göngunni en það myndaðist svo mikill núningur á milli gönguskósins og litlu táarinnar að ég fékk einhverskonar blöndu af kali og ótrúlega stórri blöðru.“

Hún harkaði þetta þó af sér og kláraði gönguna. Þetta hefur þó tekið á enda var henni rúllað um Keflavíkurflugvöll á hjólastól á meðan beðið var eftir fluginu aftur heim til Bretlands líkt og sjá má á myndinni hér fyrir neðan. Þegar heim var komið fékk hún hins vegar nóg og ákvað með sjálfri sér að eitthvað þyrfti að gera.

„Þetta versnaði bara þannig að ég hugsaði: „fjandinn hafi það“ og ég reif efsta hlutann af.“

„Þú reifst hann af?“ spurði þáttastjórnandinn, nokkuð hneykslaður en sjá má viðtalið í spilaranum hér fyrir neðan.

„Já, efsta hlutann. Ég er frekar mikill nagli,“ sagði Pattinson, stolt af sjálfri sér.

Læknar telja líklegt að með þessu hafi Pattinson eignast sinn eigin minjagrip um dvöl sína á Íslandi. Segja þeir að hún þurfi að lifa með þessu til æviloka, afar ólíklegt sé að nöglin á litlu tánni muni vaxa til baka eftir þessi ævintýri.

First day on the trail for Team Iceland Boob! #fabulouschallenges #eggy

A video posted by CoppaFeel! (@coppafeelpeople) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×