Skoðun

Raunhæf leið að upptöku evru

Björgvin G. Sigurðsson skrifar
Vorið 2009 boðaði formaður Sjálfstæðisflokksins „trúverðuga leið að upptöku evru“ með stuðningi AGS og ESB. Hjáleið að myntbandalaginu án aðildar að Evrópusambandinu sjálfu. Hugmyndin var ein margra óraunhæfra um þægilega skyndilausn á gjaldmiðilsmálum okkar, enda hefur ekkert heyrst af henni síðan.

Upptaka evru í gegnum aðild að ESB er eini valkosturinn við verðlitla, verðtryggða krónu í höftum. Það hefur ítrekað verið staðfest. Það merkir hins vegar ekki að við þurfum að bíða í mörg ár frá aðild þar til við getum notið kosta myntbandalagsins.

Strax í upphafi aðildarferlisins munum við njóta ávinnings. Um leið og við tökum skýra ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild breytist staða okkar og staða krónunnar. Skyndilega munu erlendir krónueigendur vilja halda í krónurnar sínar, því þær munu í fyllingu tímans breytast í evrur. Sá mikli þrýstingur sem nú er á gengi krónunnar vegna vilja útlendinga til að skipta krónum fyrir gjaldeyri mun minnka og afnám hafta verða auðveldara.

Næsta skref verður svo að Ísland kemst inn í myntsamstarf aðildarríkjanna, ERM II. Um leið og það gerist mun krónan njóta stuðningsumgjarðar af hálfu Seðlabanka Evrópu og enn frekari ávinningur peningalegs stöðugleika koma í ljós. Verðbólgan verður þá minni og við getum hafist handa um að létta verðtryggingaroki húsnæðislánanna af landsmönnum.

Sú skipti yrðu möguleg með skiptiútboði þar sem útistandandi skuldabréfum Íbúðalánasjóðs og annarra lánveitenda yrði skipt fyrir evrubréf með föstum vöxtum án verðtryggingar. Í kjölfarið væri hægt að breyta lánskjörum almennings til samræmis við það.

Mikið liggur við að stöðva verðbólguna og aftengja vítahring verðtryggingarinnar. Veik staða krónunnar, verðbólgan og verðtryggingin eru að fara langt með að eyða eignum heimilanna. Hægt er, með aðildinni að EMRII, að losa lántakendur við verðtrygginguna strax á fyrsta ári ESB-aðildar og lenda varanlegri lausn á þeirri ógn við efnahagslegt sjálfstæði landsins sem felst í veikburða peningakerfi. Þetta er raunhæf leið að upptöku evru.




Skoðun

Skoðun

Er þetta eðli­legt?

Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar

Sjá meira


×